150. löggjafarþing — 93. fundur,  28. apr. 2020.

Matvælasjóður.

728. mál
[16:31]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Forseti. Mér sýnist að þetta frumvarp eigi eftir að verða farsælt. Eins og ég nefndi í andsvari við hv. formann atvinnuveganefndar, Lilja Rafneyju Magnúsdóttur áðan, eru sum atriði sem ég hef haft áhyggjur af og fór líka yfir í nefndinni. Þar var brugðist við sumum af þeim áhyggjum eins og því atriði að ráðherra þyrfti að samþykkja tillögur um úthlutanir. Það er búið að fjarlægja það, sem er gott. Búið er að bæta inn fagráði þar sem miklu fleiri aðilar koma að því að leggja inn tillögur eða umsagnir um það til stjórnar, fjögurra manna stjórnar, í hvaða úthlutanir hún á að fara. Það er mjög gott, það dreifir valdi og passar upp á faglegri vinnubrögð, mjög píratalegt.

Ef ég fer yfir frumvarpið sjálft þá er það þrjár greinar. Í 1. mgr. 1. gr. segir, með leyfi forseta:

„Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaði og sjávarútvegi.“

Í nefndaráliti er lagt til að breyta þessu í: „framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum“, þannig að greinarnar eru teknar út og fókusinn er á afurðirnar úr þeim.

Það er líka mjög góð breyting sem er verið að gera þarna, leggja niður tvo sjóði, Framleiðnisjóð landbúnaðarins sem fókuserar á framleiðni, og svo AVS, sem ég veit nú ekkert hvað stendur fyrir en er úthlutunarsjóður sjávarútvegsins á svipuðum forsendum. Framleiðnisjóðurinn heldur þó áfram að úthluta því sem hann á eftir að úthluta á árinu en verður svo lagður niður í lok árs. Matvælasjóður tekur á endanum við verkefnum hans og í staðinn fyrir að vera með fókus á framleiðni er, í þessu frumvarpi, fókus á þróun og nýsköpun. Framleiðni þýðir bara að maður á að hámarka framleiðni og innan hvaða tímaramma á að gera það. Stundum er ekkert gott að hámarka framleiðni strax, stundum er mjög gott að setja pening í þróun og nýsköpun sem kostar peninga en skilar miklu meiri framleiðni þegar til lengri tíma er litið. Þetta er mjög góð þróun.

Í 2. mgr. 1. gr. segir, með leyfi forseta:

„Matvælasjóður lýtur stjórn fjögurra manna sem ráðherra skipar til þriggja ára í senn. Einn skal skipaður samkvæmt tilnefningu Bændasamtaka Íslands, einn samkvæmt tilnefningu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og tveir án tilnefningar og skal annar þeirra vera formaður.“

Þetta þýðir að ráðherra skipar alla í stjórn en hann verður að skipa þá sem Bændasamtökin annars vegar og Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hins vegar leggja til. Ráðherra skipar hina tvo en síðan kemur fram ákvæði um oddaatkvæði í breytingartillögu við frumvarpið. Ráðherra getur í rauninni stillt upp sínu fólki þarna, en sem betur fer er sett upp hvernig vinnubrögðin eiga að vera, hver markmiðin eru o.s.frv. Það er að einhverju leyti fest í frumvarpinu, verður síðan að vera fest út frá forsendum frumvarpsins. Ég er yfirleitt ekki hrifinn af þeirri leið að ráðherra ráði alltaf formann en þarna eru margar girðingar sem gera það minna hættulegt. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi voru náttúrlega með töglin og hagldirnar í AVS-sjóðnum og Bændasamtökin voru með tögl og hagldir, fyrir utan náttúrlega ráðherra, í Framleiðnisjóði landbúnaðarins þannig að þetta er í rauninni áframhald af því, en þó þannig, eins og ég nefndi áðan, að hér er komið annað batterí, fagráð sjö aðila sem metur umsóknir og gefur umsagnir til stjórnar um þessi atriði. Það er komið miklu ríkara aðhald, fleiri fagaðilar, víðtækari sjónarmið í þessu ferli. Það er hluti af þeim girðingum sem gera málið miklu farsælla.

Svo er hér viðbót, breytingartillaga frá meiri hluta nefndarinnar við frumvarpið, og hún kemur þá inn ef hún verður samþykkt, með leyfi forseta:

„Ef til atkvæðagreiðslu kemur innan stjórnar og atkvæði falla jafnt ræður atkvæði formanns.“

Í frumvarpinu kemur fram að stjórninni sé heimilt að skipa fagráð sér til ráðgjafar en meiri hluti breytir því þannig að það er ekki bara heimilt heldur skylt. Það er mjög gott því að þegar menn eru farnir að framkvæma svona hluti, að útdeila peningum, þá lúslesa þeir hvað stendur í lögunum og freistnivandi getur verið mjög víða þannig að það er gott að negla þetta niður og hafa það skýrt.

Í annarri breytingartillögu segir, með leyfi forseta:

„Stjórn sjóðsins gerir tillögur um úthlutanir úr sjóðnum að fenginni umsögn fagráðs sem stjórnin skipar til fjögurra ára í senn. Fagráð skal skipað allt að sjö einstaklingum. Fagráð er til ráðgjafar um fagleg málefni við úthlutanir úr sjóðnum. Jafnframt er fagráð ráðgefandi fyrir stjórn sjóðsins eftir því sem óskað er.“

Þessi breytingartillaga var sett inn af nefndinni, að fagráð sé til ráðgjafar um fagleg málefni við úthlutanir úr sjóðnum. Fagleg málefni verða að vera leiðarljósið við úthlutun úr sjóðnum. Það er, eins og ég nefndi áðan, mjög nauðsynleg girðing í því að skapa ekki freistnivanda og gerræði við meðferð þessara peninga, að þeir skili sér raunverulega í það sem við viljum, sem er þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaði og sjávarútvegi.

Í 3. mgr. 1. gr. frumvarpsins segir:

„Stjórn sjóðsins mótar stefnu fyrir sjóðinn og ber undir ráðherra til samþykktar. Stjórnin skal gera tillögur til ráðherra um úthlutanir úr sjóðnum.“

Eins og ég nefndi áðan er það fellt út að stjórn sjóðsins skuli gera tillögur til ráðherra og það er mjög gott, það minnkar mögulega freistnivanda og geðþóttaákvarðanir ráðherra og færir það inn á faglegra svið þeirra aðila sem eru í fagráðinu.

Áfram í 3. mgr. 1. gr.:

„Ráðstöfunarfé sjóðsins samanstendur af fjárveitingu af fjárlögum hverju sinni og öðrum tekjum, eftir því sem þeim er til að dreifa.“

Ekkert við þetta að athuga.

Í 4. mgr. 1. gr. segir, með leyfi forseta:

„Stjórn sjóðsins hefur umsjón með rekstri hans. Heimilt er að fela þriðja aðila reksturinn. Stjórnin skilar ársreikningi og reglulegu yfirliti um störf sín til ráðherra. Þóknun stjórnar er ákveðin af ráðherra. Kostnaður af rekstri sjóðsins greiðist af tekjum hans.“

Þetta atriði um þóknun stjórnar er mjög reglubundið í lögum um stjórnir. Mér finnst þetta slæm regla. Mér finnst að það eigi á einhverjum forsendum að festa þetta í löggjöfinni því að um leið og þú hefur vald til þess að ákveða þóknun fyrir starf ertu kominn með óbein áhrif á niðurstöðuna. Hvers vegna má ekki lækka laun dómara? Þegar verið er að lækka laun þá má ekki lækka laun dómara, réttilega, því að maður vill ekki að þingið geti hlutast til um annað vald, dómsvaldið, með þeim hætti og hafa þar af leiðandi óbein áhrif á ákvarðanir þess. Við viljum hafa þessi völd aðgreind og það er eitt af grundvallaratriðum varðandi aðgreiningu valds að einn aðili hafi ekki vald yfir þóknunum annarra. Til að mynda segir í stjórnarskrá að ekki megi lækka laun forseta á kjörtímabilinu. Þetta er ástæðan fyrir því. Ég er því ekki hlynntur þessu ákvæði og mun greiða atkvæði á móti því. Þóknun ætti að vera ákveðin með lögum.

Í 5. mgr. 1. gr. segir, með leyfi forseta:

„Stjórn sjóðsins setur starfsreglur um auglýsingar, meðferð og mat umsókna, framkvæmd úthlutunar, fagráð o.fl.“

Þarna er einhver freistnivandi en mér sýnist hann ekki vera mikill. Það þarf bara að fylgjast með þessu, að þetta sé gert á faglegum forsendum. Stjórnin hlýtur að þurfa að fylgja stjórnsýslulögum og ef svo er þá er í stjórnsýslulögum alls konar fagleg sjónarmið sem verður að taka tillit til við slíkt. Það er í lögunum, það þarf að hafa eftirlit með því hvort menn freistist til að gera eitthvað annað. Og ef einhver er óánægður með þetta í framtíðinni þá á endilega að láta þá þingmenn vita sem sitja í atvinnuveganefnd og hafa eftirlit með ráðherra og undirstofnunum hans, hans málasviði og því sem varðar þessa hluti, hafa eftirlit með því að verið að framfylgja lögunum eins og þau voru sett hér.

Í 2. gr. segir: „Lög þessi öðlast þegar gildi.“

Síðan kemur ákvæði um að lög um Framleiðnisjóð landbúnaðarins falli úr gildi, það er í rauninni bara verið að fella úr gildi önnur lög, þetta er bandormsákvæði, fella úr gildi lög um Framleiðnisjóð, en hann og AVS-sjóðurinn renna inn í Matvælasjóð.

Í 3. gr. segir að við gildistöku þessara laga verði breytingar á öðrum lögum, þetta er líka bandormur um breytingar á öðrum lögum, búnaðarlögum, lögum um skattskyldu lánastofnana, og skipta Framleiðnisjóði út fyrir Matvælasjóð.

Svo er eitt ákvæði til bráðabirgða þar sem segir að þrátt fyrir þennan bandorm, þar sem verið er að breyta hinum og þessum lögum lítillega, skuli Framleiðnisjóður landbúnaðarins halda sömu skattalegu stöðu og hingað til út starfstíma sinn. Eins og hv. formaður atvinnuveganefndar, Lilja Rafney Magnúsdóttir, kom inn á er starfstími hans út þetta ár. Það er gott þannig að hann getur klárað þau verkefni sem eru á hans snærum. Úthlutun hans fer fram í október.

Ég fékk svar frá formanni hér í andsvari áðan að úthlutun þessara peninga ætti að geta hafist hjá Matvælasjóði núna í haust sem, eins og kom fram í umræðu í nefndinni, væri líklega svipaður tími og annars hefði verið. Þau sögðu hjá framleiðnisjóði og AVS að þau væru með betri verkferla, reyndara starfsfólk og allt það og gætu þar af leiðandi gert þetta hraðar, en bættu síðan við það að menn búist ekki við því að kalla eigi eftir umsóknum því að það tæki einhvern tíma að fá þær. Það tæki sama tíma — menn vita núna að Matvælasjóður er að fara í þessar úthlutanir í sumar. Þetta myndi líklega skarast bara vel, ferlið gæti tafist eitthvað en ég get ekki rökstutt að það muni tefjast. Ég hef fengið vilyrði fyrir því frá ráðuneytinu og formanni áðan, en skilningur okkar á þessu er þannig að þessir peningar munu komast í vinnu á mjög svipuðum tíma og það hefði annars gerst hjá hinum. Það þýðir að við munum hafa eftirlit með því. Ráðuneytið hefur upplýst okkur um að vinnan sé búin að vera í gangi í langan tíma, margir af ferlunum eru tilbúnir, skipun stjórnar og aðrir ferlar sem þurfi að setja í gang. Það er vel undirbúið og þar af leiðandi er hægt að fara hratt og vel í þetta. Ef svo er ekki þá er þetta ekki Covid-mál. Þær 500 milljónir sem er verið að bæta við til matvælaframleiðslu, við þær 400 milljónir sem eru nú þegar til staðar — sú úthlutun er vegna Covid. Ef þetta mál mun tefja þá úthlutun er það orðið svona and-Covid mál og farið að skemma fyrir. Ég trúi ekki öðru en að ráðuneyti passi sérstaklega vel upp á að þessir peningar komist hratt og vel í vinnu til að uppfylla þann vilja löggjafans í því samhengi. Ég þakka formanni nefndarinnar fyrir að ítreka það.

Ég er ánægður með að hafa fengið að taka þátt í vinnslu þessa máls og aðstoða við að gera það betra. Ég þakka nefndinni fyrir að taka tillit til langflestra sjónarmiða, það var fullt af öðrum sjónarmiðum sem komu frá fólki í nefndinni sem gerði það betra þannig að ég myndi segja að þetta hafi verið mjög farsælt samstarf.