150. löggjafarþing — 93. fundur,  28. apr. 2020.

Matvælasjóður.

728. mál
[16:45]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg):

Herra forseti. Það er stundum svo að breytingar verða á umhverfi okkar og þegar erfiður heimsfaraldur breytir efnahagsforsendum og fær okkur til að íhuga stöðuna og breyta áherslum kemur ýmislegt nýtt fram. Það er orðið margrætt hér á Alþingi að lykilhlutverk í öllu því sem við tekur er nýsköpun og það sem tengist henni, sprotavinna og rannsóknir. Ég vil minna á það að í fyrsta sinn í sögunni er til nýsköpunarstefna, sett fram af stjórnvöldum, og þykir ágæt, hefur lítið verið gagnrýnd, ef nokkuð. Eins hafa stjórnvöld aukið stuðning sinn við nýsköpun fyrir tíma þessa faraldurs, bætt svo um betur og hafa lagt meira fé en áður til nýsköpunar í helstu atvinnugreinum landsins. Ég ætla rétt að nefna það helsta. Það hefur verið rýmkað fyrir fjárfestingum lífeyrissjóða í nýsköpun, bætt hefur verið við í Nýsköpunarsjóð námsmanna, endurgreiðsluhlutfall hefur verið hækkað til nýsköpunar- og sprotafyrirtækja, það er búið að bæta við í Tæknisjóð og það á að koma á fót sérstökum sjóði sem er kallaður Kría til að fjárfesta í svokölluðum vísisjóðum. Og það á að sameina tvo sjóði og bæta við einum í eins konar grúppu sem við köllum Matvælasjóð. Hann mun hafa árlega a.m.k. 900 millj. kr., fyrst í stað 500, síðan er 400 bætt við og síðan í framhaldinu, ef efnahagsástandið leyfir það yfir höfuð, verða settar áfram 900 milljónir hið minnsta til þessa sjóðs. Við ætlum að ræða hann nánar hér vegna þess að hann er mikilvægt skref og tilraun til að svara kalli tímans, eins og ég gerði grein fyrir áðan, í kjölfar þessara breyttu efnahagsforsendna og í þágu framtíðar.

Það er í raun og veru ágæt samstaða á Alþingi um að efla innlenda matvælaframleiðslu. Ég held að allir flokkar hér hafi tekið undir þá almennu stefnu að efla innlenda framleiðslu. Það er auðvitað til eigin neyslu, það er í þágu matvælaöryggis og þegar fram líða stundir aukins útflutnings matvæla. Þetta snýst auðvitað um græna raforku sem við höfum, gott vatn og hreinan sjó, hreint loft, frjósaman jarðveg lengst af og svo jarðvarmann. Og hvers konar matvæli erum við þá að tala um? Hvað erum við að leggja til að Matvælasjóður styrki, sem á að sinna þróun, nýsköpun og tengdu, í hvað á féð að fara? Að sjálfsögðu grænmeti og ávexti, sem er landræktun. Það er kornræktun sem hefur gengið æ betur þó að erfið ár geti komið inni á milli. Það er kjöt og mjólk og skyldar vörur. Það er fiskur úr landræktun og þar eru nokkuð stórfelldar fyrirætlanir, t.d. í nágrenni við Þorlákshöfn, svo ég nefni einhver dæmi. Síðan er það fiskurinn úr sjónum og jurtir og þörungar úr sjó. Það er mjög mikilvægt að íhuga allt þetta sem ég hef nefnt vegna þess að kjöt og mjólk vilja margir telja óþarfa að framleiða nema að litlu leyti vegna þess að það eigi eitthvað annað að koma í staðinn, en þá gleymist það gjarnan að landfræðilegar og náttúrufarslegar aðstæður eru ólíkar á jörðinni eftir því hvar við erum á hnettinum. Það þarf auðvitað ekki að útskýra það fyrir fólki. Sum svæði gætu verið eyðimerkursvæði eins og eru sums staðar í Afríku þar sem fólk lifir nánast eingöngu á nautgripum og blóði úr nautgripum upp í það á norðlægum slóðum þar sem við getum ekki ræktað nema sumt. Það er algjör tálsýn að halda að menn verði hér sjálfbirgir með alla skapaða hluti í gróðurhúsum. Það er ekki um það að ræða. Landfræðilegar aðstæður skipta alltaf máli. Þess vegna er kjöt- og mjólkurneysla nauðsynleg mjög víða í heiminum og sennilega víðast hvar í einhverju hlutfalli við rétta næringarfræði. Hvað fiskinn úr sjónum varðar og jurtir og þörunga er aðalröksemdin fyrir því einfaldlega dreifing sjávar miðað við land. Um tveir þriðju af jörðinni er sjór en einn þriðji er land og ef við ætlum að halda líffræðilegri fjölbreytni á landi, ef við ætlum að geta stundað skógrækt og ef við ætlum yfir höfuð að halda í ýmisleg náttúrufarsleg gæði, er landjörðin takmörkuð til ræktunar þannig að við verðum að snúa okkur að sjónum hvað sem tautar og raular.

Innlend matvælaframleiðsla hefur mjög gildan loftslagsþátt. Því meira sem við sjáum um hana á réttan og sjálfbæran hátt, því minna álag er á loftslag jarðar sem við vitum hvert stefnir. Þetta er líka ákveðin fjárfesting í því framtíðarhringrásarhagkerfi sem við viljum gjarnan sjá og þetta er umhverfismál í víðum skilningi þó ekki væri nema fyrir aukna endurvinnslu sem er í kjölfar heimafenginnar framleiðslu. Það er því að öllu að vinna hér. Við verðum að muna að nýsköpun, sem við lítum gjarnan á að hafi lykilhlutverk í þessu, er langt ferli. Það þarf þolinmæði og styrka sérsjóði til að slíkt sé hægt, þolinmótt fjármagn, fyrirtæki sem vilja taka þátt. Sjóðir eins og Tækniþróunarsjóður, Kría sem til sögu kemur og þessi Matvælasjóður og fleiri sjóðir eru allt forsenda fyrir því að nýsköpun sé fjármögnuð að vissu leyti vegna þess að þegar allt kemur til alls þarf atvinnulífið sjálft að koma mjög sterkt inn. Það er oft sagt að minni verkefni þurfi tvö til þrjú ár frá hugmynd til vöru og stór verkefni, vara til útflutnings, séu fimm til tíu ár í þróunarferli. Það er því augljóst mál að nýsköpun er ekki eitthvað sem bjargar okkur á morgun úr þessum faraldri.

Ég ætla að minna á að kostnaður hér og í nágrannalöndunum á hvert verkefni er nokkurn veginn sá sami. Ef framleiða á tiltekna fiskvinnsluvél í Noregi eða á Íslandi þá er það sem fer af vinnustundum og peningum ekkert ósvipað. Þetta leiðir til þess að við þurfum að stunda sérhæfingu. Það er auðvelt að nefna sex atriði í þeirri sérhæfingu, sem ég ætla að leyfa mér að gera. Það er matvælaframleiðsla á landi, sem ég hef minnst á áður, og þar getur jarðvarminn komið mjög sterkur inn. Það er stafræn þróun og forritun. Við þekkjum það frá Origo eða CCP. Það er allt sem tengist fiskveiðum og fiskvinnslu, þ.e. véltækni. Síðan er það fullvinnsla á hráefni sem kemur upp úr sjónum og fyrirtæki eins og Kerecis er þar gott dæmi. Svo koma fæðubótarefnin og lyfin, hvort það er Genís eða eitthvað slíkt, lækningavörurnar eða stuðningsvörur eins og Össur er með og svefnrannsóknir eins og hjá Nox Medical. Það er hægt að nefna þessi fyrirtæki, sem menn þekkja mjög vel, til að sýna fram á hvar við erum sterk. Það er á þessum sviðum sem ég hef talað um. Matvælin eru þar framtíðarmúsík vegna þess að ef vel er á spilum haldið getur næsti iðnaður, við getum kallað það orkufrekan iðnað, sem getur virkilega vaxið og dafnað á Íslandi, orðið á sviði matvæla, bæði úr sjó og af landi.

Þá í augnablik að Matvælasjóðnum í lokin, herra forseti. Hann fellur ekki bara vel að nýsköpunarstefnunni heldur líka að byggðamálum. Það þarf ekki að útskýra það vegna þess að við erum jú að tala um sjávarútveg og landbúnað og það eru þær greinar sem skipta verulegu máli, það er alkunna. Þegar ég hlusta svo á hv. þm. Birgi Þórarinsson útskýra minnihlutaálitið og andstöðu Miðflokksins, þá verð ég að lýsa mig mjög ósammála því að byggja það á upptalningu á því sem hugsanlega gæti gerst. Ef þetta er svona og ef hitt er hinsegin. Það eru spekúlasjónir, svo maður orði nú það, um það sem gæti gerst með 900 milljóna sjóði. Það gæti vel verið að það þyrfti að minnka þennan sjóð, það gæti vel verið að það drægi einhvern tíma í framtíðinni úr einhverjum greiðslum. Það gæti vel verið að eitthvað af verkefnum lendi milli skips og bryggju. En á þessu öllu er hægt að vinna bug. Það er gert með því að stjórn sjóðsins er með fulltrúum hagaðila, bæði Bændasamtakanna og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Það er sjö manna fagráð. Það er háskólafólk, fólk með reynslu og þekkingu úr atvinnulífinu og fólk með þekkingu á framkvæmdum og frumkvöðlastarfi og nýsköpun. Það er sparnaður við sameiningu þessara sjóða upp á 20 milljónir á ári sem við vitum þá hvert geta gengið. Hann er í góðu samræmi við aðgerðaáætlun um matvælaöryggi sem til er og hann er meira að segja góðum samhljómi við stefnu um vernd búfjárstofna sem ætti að skipta máli á Íslandi. Það er hægt að hugsa sér einhverjar tilbúnar tafir á úthlutun. Það væri líka hægt að hugsa sér að hækka þessa styrki í framtíðinni sem myndi þá vega á móti einhverjum töfum sem kynnu að verða. Það er líka hægt að gæta þess að hlutföll milli atvinnugreina séu viðráðanleg og rétt miðað við það hvernig stjórnarfyrirkomulagið er og hvernig fagráðinu er fyrir komið. Síðan er að sjálfsögðu hægt að breyta starfsháttum og reglum og öðru slíku sem þennan stóra sjóð varðar samkvæmt reynslu á næsta ári.

Ég gef því lítið fyrir þetta minnihlutaálit og hvet til þess að frumvarpið verði samþykkt núna síðla dags eða á morgun eða hvenær sem það nú verður með þeim breytingum sem hv. atvinnuveganefnd hefur lagt fram í meirihlutaáliti. Þá hef ég lokið máli mínu, forseti.