Matvælasjóður.
Forseti. Breytingartillögur meiri hluta atvinnuveganefndar eru mjög góðar, margar hverjar, og ég fór yfir þær í ræðu við 2. umr. Mögulegt geðþóttavald er fært frá ráðherra. Eins og frumvarpið var lagt fram hafði hann vald til að ákveða hverju skyldi úthlutað eftir að stjórnin var búin að taka ákvörðun um það. Það er fjarlægt úr frumvarpinu og í staðinn kemur fagráð miklu fleiri aðila og sjónarmiða, sjö manna fagráð sem mun síðan koma með tillögur til þessarar fjögurra manna stjórnar. Þetta er valddreifing og faglegri vinnubrögð og allar breytingartillögurnar sem hafa verið gerðar hafa bætt málið mjög mikið og Píratar styðja það.