150. löggjafarþing — 93. fundur,  28. apr. 2020.

Matvælasjóður.

728. mál
[18:05]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Herra forseti. Hér er verið að samþykkja lög um stofnun Matvælasjóðs sem við Vinstri græn höfum lengi lagt mikla áherslu á og hefur verið í undirbúningi í þó nokkuð langan tíma í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu. Ég tel þetta vera mikilvægt skref til að þróa innlenda matvælaframleiðslu sem nú er þörf á sem aldrei fyrr, að við sem þjóð getum haft sem mesta innlenda matvælaframleiðslu eins og sýnir sig við þessar aðstæður. Þessi sjóður tekur við af gamalreyndum sjóði, Framleiðnisjóði landbúnaðarins, og nýrri sjóði sem snýr að sjávarútveginum, AVS. Við horfum til fjölbreyttrar matvælaframleiðslu í öllum greinum, grænmeti og öðru, og á þessum tímum er mjög gott að fá innspýtingu í þetta mikilvæga mál, að efla matvælaframleiðslu á Íslandi og efla störf úti um allt land. Ekki veitir af.