150. löggjafarþing — 93. fundur, 28. apr. 2020.
Matvælasjóður.
728. mál
Hæstv. forseti. Við greiðum hér atkvæði um Matvælasjóð og við Framsóknarmenn fögnum þessu framtaki. Með öflugri sjóði og auknum fjármunum erum við að styrkja og efla nýsköpun og þróun matvælaframleiðslu í bæði landbúnaði og sjávarútvegi. Fulltrúi okkar í hv. atvinnuveganefnd, hv. þm. Halla Signý Kristjánsdóttir, ritar undir álit meiri hluta og leggur áherslu á mikilvægi fagráðs og að um leið og samvinna og samlegð skapast verði jafnræðis gætt á milli ólíkra matvælaframleiðslugreina um allt land.