150. löggjafarþing — 93. fundur,  28. apr. 2020.

Matvælasjóður.

728. mál
[18:07]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Forseti. Ég hef alveg málefnalegar ástæður fyrir því að vilja geta greitt atkvæði gegn nokkrum atriðum, verið á gula takkanum í sumum en í heildina á þeim græna þar sem mér sýnist málið í heildina verða mjög farsælt, en þar sem atkvæðagreiðslunni er svona háttað eltist ég ekki við það og greiði bara atkvæði með málinu heilt yfir af því að ég tel það farsælt. Í ræðu við 2. umr. gerði ég líka grein fyrir þeim atriðum sem ég hefði viljað greiða atkvæði gegn eða sitja hjá við.