150. löggjafarþing — 93. fundur,  28. apr. 2020.

Matvælasjóður.

728. mál
[18:08]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Að sjálfsögðu styð ég þetta mál, studdi það líka þegar umræðan um sameiningu þessara sjóða varð fyrst, vegna þess að ég tel svo mikilvægt þegar við erum að ræða um stuðningsumhverfi nýsköpunar að það sé eins einfalt og hægt er og að mikil þekking byggist upp í stuðningsumhverfinu. Ég held þess vegna að gríðarleg tækifæri séu fólgin í þessari sameiningu. Ég efast ekki um að þessir tveir sjóðir hafi hingað til styrkt mjög góð og þörf verkefni en ég held að með sameiningunni sé tækifæri til að gera enn betur.

Auk þess legg ég áherslu á að þarna liggja tækifærin okkar núna. Í því umhverfi sem við erum í núna munu nýsköpun, rannsóknir og þróun koma okkur út úr þessari kreppu. Þangað eigum við að horfa og tækifæri fyrir Ísland sem matvælaland eru mikil. Þetta er vonandi bara eitt skref í átt að því að efla þá þróun enn frekar.