Matvælasjóður.
Herra forseti. Þegar við vorum þingmenn Reykjaneskjördæmis var það almennilegt landbúnaðarkjördæmi. Engu að síður er öflugur landbúnaður innan Kjósarinnar sem dregur fram mikilvægi þess að hlúa að nýsköpun. Eins og ég sagði áðan styð ég þetta mál eins og ég gerði í desember. Þá ákváðu ríkisstjórnarflokkarnir að stoppa það að sameina sjóðina og við skulum tala hreint út, það var m.a. út af þrýstingi frá hagsmunaaðilum sem töldu sameininguna ekki tímabæra. Ég el þá von í brjósti að þetta sé fyrsta skrefið í því að við hugum markvisst að aukinni nýsköpun, auknum styrkjum til landbúnaðar og sjávarútvegs og annarra matvælagreina fyrir landið til framtíðar þannig að við getum virkilega farið að byggja upp nýsköpun, rannsóknir og þróun á þessu sviði. Þar getum við verið í forystu, við eigum allan efnivið til þess, hráefnið, þannig að við eigum að geta búið til þannig umhverfi að við getum haldið vel utan um þær mikilvægu atvinnugreinar sem falla undir matvælaiðnaðinn (Forseti hringir.) þannig að sóknin verði m.a. þar til næstu ára.