150. löggjafarþing — 94. fundur,  28. apr. 2020.

breyting á ýmsum lögum vegna launa þingmanna og ráðherra.

731. mál
[19:10]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Forseti. Ég er einn af flutningsmönnum þessa máls um að falla frá þeirri hækkun sem á að koma til greiðslu núna 1. maí, á verkalýðsdaginn, sem verður í fyrsta skipti líklega í 100 ár ekki haldinn vegna Covid-veirunnar, á sama tíma og hæstv. fjármálaráðherra segir að þetta sé kreppa sem gæti verið harðari en við höfum séð í 100 ár. Í kreppunni fyrir 12 árum steig þáverandi hæstv. forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, inn í og lækkaði laun þingmanna einmitt til þess að sýna landsmönnum að ráðamenn ætluðu að deila örlögum með þjóðinni. Ef þú deilir ekki örlögum með fólkinu sem þú ætlar að ráða yfir þá áttu ekki rétt á trausti þess fólks. Þetta hafa herforingjar alla söguna vitað. Þeir sem voru ástsælastir af sínum hermönnum, ástsælustu leiðtogarnir, voru þeir sem deildu örlögum með undirmönnum sínum.

Kjararáðssagan frá því fyrir hrun er sú að þegar kjararáð hækkaði laun of mikið á sínum tíma steig þáverandi hæstv. forsætisráðherra, Davíð Oddsson, inn í. Ég man ekki í svipinn hvenær þetta var, ég fór yfir þessa sögu alla þegar við vorum að karpa um ofurhækkun kjararáðs á sínum tíma árið 2016, en mig minnir að þetta hafi verið í kringum 1996. Hann greip inn í og ekki nóg með það, heldur kallaði eftir því að sett yrðu bráðabirgðalög. Vigdís Finnbogadóttir undirritaði bráðabirgðalög um Kjaradóm sem hækkaði laun þingmanna lítillega umfram almenna launaþróun, ekki um þetta risastóra stökk, 45% hækkun á einu bretti. Þetta var innan við tugprósenta hækkun, ef ég man rétt. Þarna steig forsætisráðherra Davíð Oddsson inn í og bað Vigdísi Finnbogadóttur forseta að samþykkja bráðabirgðalög um að fella þessa hækkun úr gildi.

Síðan gerðist það sama árið 2006, þá var Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra. Hækkunin var svipuð. Í öðru tilfellinu var hún held ég rétt yfir 10%, í hinu tilfellinu var hún 5–6%. Aftur var gripið inn í, felld úr gildi ákvörðun Kjaradóms, sem þá var. Síðan er Kjaradómur lagður niður, menn voru ekki ánægðir með fyrirkomulagið og Kjaradómur og einhver önnur nefnd sett saman í kjararáð. Kjararáð tekur svo þá eftirminnilegu ákvörðun á kjördag 2016 um að hækka laun þingmanna um 45%. En takið eftir því að fyrr á árinu, við getum séð það í úrskurðum kjararáðs, höfðu laun allra sem heyrðu undir kjararáð, þar á meðal þingmanna og ráðherra og annarra ráðamanna, hækkað um rúm 10%, 15% ef ég man rétt, og svo hafði verið einhver hækkun þar á undan. Ég er ekki búinn að fá það staðfest en ég heyrði það nýlega. En þessar hækkanir áttu sér stað þannig að þetta var ekki bara 45% hækkun á árinu heldur miklu meiri en það. Auðvitað varð allt brjálað, ASÍ og fleiri. Þetta var í október, þá voru kosningar, og kjarasamningar gátu verið lausir í febrúar eftir áramótin. Kjarasamningar 70% launafólks voru í uppnámi. Það sögðu allir, m.a. Samtök atvinnulífsins, heildarsamtök atvinnurekenda.

Við Píratar gagnrýndum þetta strax. Kjördagur var á laugardegi, svo kom sunnudagar og við sáum þessa hækkun á mánudegi og gagnrýndum hana strax opinberlega og formlega. Ég fór í að skoða hvað væri hægt að gera. Forseti Íslands hefði getað fellt þetta úr gildi en það var ólíklegt. Hann gerði það ekki. Ég sagði að ef kjararáð, forseti Íslands eða Alþingi, þessir þrír aðilar, myndu ekki gera eitthvað í málinu myndi ég leggja til breytingar á þessu og kæra kjararáð. Í þinginu var gert eitthvað lítilvægt til að lækka kjör þingmanna og þingmenn ákváðu að samþykkja ekki þær tillögur og breytingartillögur sem Píratar lögðu fram og frumvörp um að við værum bara á sama stað og almenn launaþróun eins og lögin um kjararáð kváðu á um. Nei, það vildu þingmenn ekki og vildu ekki miða við launaþróun frá 2013 eins og 70% launafólks á almennum vinnumarkaði þurfti að gera til að skapa SALEK-samkomulagið, til að reyna að skapa ró á vinnumarkaði. Menn voru tilbúnir að fórna því. Allt var í uppnámi. Hvað gerðist? Jú, það gerðust jákvæðir hlutir í kjölfarið út af þessari óánægju.

Ég fór með verkalýðsfélaginu VR í mál til að kæra kjararáð. Þingflokkurinn var allur tilbúinn til að standa að því máli en VR vildi ekki gera þetta mál flokkspólitískt, þannig að ég sem þingmaður var aðili málsins og verkalýðsfélagið sem samtök fyrir margt launafólk á markaði sem stóð frammi fyrir uppnámi á vinnumarkaði. Það ætti að sjálfsögðu að vera aðili að þessu máli, þessari ákvörðun. Það yrði rannsakað og dómstólar myndu úrskurða um það hvort þetta ríkisbatterí, kjararáð, hefði ekki brotið lög. Lögin voru alveg skýr, kýrskýr, að laun mættu ekki hækka umfram almenna launaþróun, eins og kjararáð gerði. Meira að segja var það viðurkennt hérna í þinginu að því leytinu til að menn lækkuðu kjör sín á móti til að reyna að miða við 2006, ekki viðmiðið við 2013 sem þorri launafólks þurfti að glíma við. Það var talað um þorra launafólks. Þessi saga er vel skjalsett. Niðurstaðan var sú að breytingartillögur Pírata voru alltaf felldar eða frumvörp um að þetta skyldi leiðrétt þannig að þingmenn væru á sama báti, fylgdu almennri launaþróun eins og lögin kváðu á um. Það var bara sett niður í skúffu eða breytingartillögur okkar felldar.

Óánægjan í samfélaginu og meðvitund um það hvernig staðan var varð vatn á myllu nýrrar verkalýðshreyfingar sem var mjög þarft. Vor í verkó kom upp, ný verkalýðsforysta sem fór að heyja kröftuga verkalýðsbaráttu fyrir umbjóðendur sína.

Hæstv. forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, ákvað á endanum að leggja niður kjararáð og fara í lífskjarasamninga, sem var partur af því samstarfi, og breyta fyrirkomulaginu um launakjör þingmanna á þann hátt að þingmenn, ráðherrar, ráðuneytisstjórar, dómarar, forseti og aðrir ráðamenn hækka aðeins í launum ef almenningur hefur hækkað í launum. Fyrst hækka laun almennings og aðeins þá geta laun ráðamanna hækkað og að því marki. Það er ljómandi málefnalegt fyrirkomulag. Fyrst hækka laun almennings og aðeins þá geta laun ráðamanna hækkað sem því nemur. Jafnframt voru laun allra sem heyrðu þá undir kjararáð fryst, þetta var síðasta vor, og launahækkunum sem áttu að koma til 1. júlí frestað fram til 1. janúar á þessu ári. Þetta átti að vísu ekki um alla. Þetta átti ekki við um dómara og forsetann, bara um þingmenn, ráðherra og ráðuneytisstjóra. Allir aðrir fengu sína hækkun í fyrra en þingmenn, ráðherrar og ráðuneytisstjórar þurftu að bíða og laun þeirra áttu að hækka 1. janúar á þessu ári. Hvaða ríkisbatterí var það sem gleymdi að borga þetta út? Ég gleymi alltaf nafninu. Það er eitthvert ríkisbatterí sem á að sjá um að borga út þessi laun og það gleymdi því. Ég hef talað við ráðuneytið um þetta til að vera alveg viss um að ég þekki sögu málsins. Þeir gleymdu að borga út þannig að það hefur safnast upp og nú á að borga það út á verkalýðsdaginn, 1. maí, í miðjum kórónufaraldri þegar gríðarlega margt fólk er að missa vinnuna, missa lífsviðurværið, er að tapa sínum kjörum.

Það er í sjálfu sér ekki ómálefnalegt að þingmenn og aðrir ráðamenn hækki á þeim forsendum sem varð niðurstaðan eftir að kjararáð var fellt niður. Það er alveg málefnalegt, en málið er bara að nú eru tímarnir breyttir. Þegar við stóðum frammi fyrir hruninu lagði Jóhanna Sigurðardóttir til að laun þingmanna og ráðamanna skyldu lækka. Það gera góðir leiðtogar. Þeir gera það til að sýna landsmönnum að þeir deili örlögum þeirra. Við deilum ekki kjörum með landsmönnum. Þingmenn og ráðherrar eru á allt of háum launum til þess, en deila örlögunum. Örlögin eru þannig að margir landsmenn lækka í launum. Við stöndum frammi fyrir mögulega stærstu kreppu í 100 ár. Þá eiga ráðamenn að deila örlögum með almenningi með því að lækka líka sín laun og það er það sem þetta frumvarp snýst um.

Málið er komið á dagskrá, ég vona að landsmenn sjái möguleikann og þá málefnalegu lausn sem í þessu felst og það hafi áhrif á hæstv. forsætisráðherra landsins, Katrínu Jakobsdóttur, þannig að hún stígi inn eins og leiðtogi, eins og Davíð Oddsson gerði í lok síðustu aldar, eins og Halldór Ásgrímsson gerði í upphafi þessarar aldar og eins og Jóhanna Sigurðardóttir gerði í hruninu, stíga inn, lækka kjörin eða fella úr gildi óréttmæta hækkun miðað við stöðuna, miðað við ástandið og sýna þannig að hún sé leiðtogi sem er tilbúinn að deila örlögum með þjóð sinni.