afbrigði frá þingsköpum.
Á þingfundi 12. mars sl. og aftur 14. apríl voru tímabundið veitt afbrigði frá þingsköpum til að víkja frá 1. mgr. 17. gr. um skyldu nefndarmanna til að mæta á nefndarfundi og einnig frá 22. gr. um ályktunarbærni nefndafunda.
Með afbrigðunum var vikið frá því skilyrði þingskapa að nefndarmenn þurfi að vera staddir á fundinum til að mynda ályktunarbæran nefndarfund. Forseti lagði til að afbrigðin yrðu nýtt eftir því sem nauðsyn krefði fram að því að Alþingi gerði hlé á fundum sínum um páska og síðan með framlengingu til 4. maí nk.
Forseti leggur nú til að þessi afbrigði frá þingsköpum verði framlengd út þetta þing. Í ljósi þeirra óvenjulegu aðstæðna sem nú eru uppi leggur forseti til að afbrigðin verði samþykkt án atkvæðagreiðslu samkvæmt heimild í 1. mgr. 80. gr. þingskapa.
Afbrigðin skoðast því samþykkt án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.