150. löggjafarþing — 95. fundur,  30. apr. 2020.

afbrigði.

[10:32]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Svo háttar til um 5. og 11. dagskrármálið að þingmálunum var útbýtt eftir 1. apríl og þarf því að leita samþykkis fyrir því að taka málin á dagskrá. Einnig á það við um 11. dagskrármálið að ekki er liðinn sá frestur sem 3. mgr. 37. gr. þingskapa áskilur, þ.e. svokölluð fimm daga regla. Þarf því að leita samþykkis fyrir því að taka málið á dagskrá.

Lítur forseti svo á að afbrigðin séu samþykkt án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum við því.