brúarlán og staða Icelandair.
Virðulegi forseti. Það er opinbert að ríkisstjórnin hefur átt í samskiptum við Icelandair og við höfum verið með sérstakan starfshóp að störfum til þess að fá upplýsingar um stöðu félagsins til að undirbyggja ákvöðrunartöku. Það sem hefur gerst á undanförnum vikum er að félagið sjálft hefur tekið frumkvæði. Það hefur greint frá því opinberlega í Kauphöll og nú er boðað að félagið hyggist fara í hlutafjáraukningu. Um mögulega aðkomu ríkisins að málefnum félagsins í tengslum við fjárhagslega endurskipulagningu þess er nú verið að ræða á vettvangi ríkisstjórnarinnar og ég vænti þess að við munum geta brugðist við og lagt fram skýr svör um það hvernig við sæjum fyrir okkur að það gæti orðið með aðkomu ríkisins.
Það er mín skoðun að þetta sé eitt mikilvægasta fyrirtæki landsins. Allt viðskiptamódelið sem tengist Keflavíkurflugvelli er í raun og veru hér undir og (Forseti hringir.) þar af leiðandi höfum við sett kraft í það og tekið mjög alvarlega þá stöðu sem er upp komin hjá fyrirtækinu. Það er rétt hjá hv. þingmanni að það (Forseti hringir.) geta verið fjölmörg störf undir hjá fyrirtækinu sjálfu en sömuleiðis uppbygging ferðaþjónustunnar til framtíðar.