150. löggjafarþing — 95. fundur,  30. apr. 2020.

aðgerðir til aðstoðar stórum fyrirtækjum.

[10:46]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Hér er enginn að tala um að gera ekki neitt. Það er hins vegar verið að spyrja með hvaða hætti við ættum að gera það. Það ætti ekki að vera nein goðgá fyrir jafnvel formann Sjálfstæðisflokksins að leggja til hliðar ýtrustu kreddur frjálshyggjunnar þegar Viðskiptaráð og hægri stjórnir um allan heim hafa áttað sig á því að grípa þarf inn í núna með ríkisafskiptum og tryggja samfélögin, tryggja fólkið. Þetta hefur verið gert í Þýskalandi, Frakklandi, Hollandi, Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi og víðar.

Nú liggur fyrir að u.þ.b. 7 milljarðar munu gagnast þessu fyrirtæki beint og auðvitað er það vörn við hlutafé þó að svo komi meira inn og rýri það annars staðar frá. Ráðherra talar um að jafnvel eigi að koma með meira og þá hlýtur maður að vilja fá skýr svör um hvort ekki sé eðlilegt að almenningur á Íslandi verji sína stöðu, haldi flugfélaginu vissulega gangandi, þessari mikilvægu lífæð, en geti fengið peningana til baka.