kjaramál hjúkrunarfræðinga.
Virðulegi forseti. Það er sjálfsagt mál að bregðast við skriflegri fyrirspurn um allar þær upplýsingar sem eiga að vera opinberar um kjarasamningagerð og kjarasamninga sem ríkið undirritar. Ég er ekki með á hraðbergi nákvæman kostnað við hvern og einn kjarasamning sem ríkið stendur að. Það sem ég get hins vegar sagt við hv. þingmann, og hefði verið sjálfsagt að ræða hér við hv. þm. Jón Þór Ólafsson sömuleiðis, er að viðbótarkrafa hjúkrunarfræðinga sem lengst af stóð í vegi fyrir því að samningar tækjust — en þeir tókust þó, þótt þeir hafi nú verið felldir, því miður, með tæpum meiri hluta — kostaði milljarða. Upp undir 5 milljarða, viðbótarkrafa sem farið var fram á að samið yrði um umfram það sem allir aðrir höfðu samið um. Það var það sem stóð lengst af í vegi fyrir því að samningar tækjust.
Ég held að það sé enginn ávinningur fyrir nokkurn mann að reyna að færa þessa kjaradeilu hingað inn í þingsal og toga einhverjar fylkingar í sundur í umræðu um það sem eigi að semja í einstökum atriðum svona viðkvæms máls. Það sem bíður okkar einfaldlega núna í framhaldi af því að fundur fór fram hjá sáttasemjara í morgun er að finna lausn á þessu máli. Til þess hefur vilji ríkisins ávallt staðið. Og sem betur fer tókst niðurstaða með samninganefnd Félags hjúkrunarfræðinga fyrir skömmu síðan sem hefur sett okkur núna aftur á þennan stað eftir að samningarnir voru felldir. Með þann góða stuðning sem samningurinn þó fékk held ég að við höfum ágætisveganesti. Mig grunar að það sem upp á vantar núna sé nánari útfærsla inn á einstaka stofnunum á vinnutímafyrirkomulagi og slíkum þáttum, mögulega álagsgreiðslur. Ég skal ekki úttala mig um það hér enda sit ég ekki við samningaborðið. Mínir samningamenn hafa einfaldlega fengið umboð til að ganga frá samningum sem mæta væntingum viðsemjenda þeirra (Forseti hringir.) en þó innan þess ramma sem ríkið hefur verið að semja um við aðra þannig að allir aðrir samningar séu ekki settir í uppnám í leiðinni.