150. löggjafarþing — 95. fundur,  30. apr. 2020.

kjaramál hjúkrunarfræðinga.

[10:53]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Mér heyrist á öllu að þessi rammi sé þá bara allt of þröngur. Ég velti fyrir mér hvað hæstv. fjármálaráðherra og ríkisstjórnin ætli að gera til að tryggja grundvöll fyrir því að heilbrigðiskerfið okkar virki vel, sem er starfsfólkið og hjúkrunarfræðingar, að þetta haldi sér. Ég kallaði eftir upplýsingum um heildarkostnað fyrir ríkissjóð, ég vildi vita umfangið af því að ég vildi bera það saman við önnur útgjöld ríkisins. Ég vil að almenningur fái tækifæri til að leggja mat á forgangsröðun þessarar ríkisstjórnar gagnvart sameiginlegum sjóðum okkar allra. Við vitum núorðið ýmislegt um þennan nýfellda samning sem var mikil óánægja með, herra forseti, eins og t.d. að samþykkt hans fæli í sér launalækkun fyrir a.m.k. hluta hjúkrunarfræðinga. Það eru upplýsingar sem við fengum frá hjúkrunarfræðingum sem og að launahækkanir hjúkrunarfræðinga næðu ekki upp í 70.000 kr. á fjögurra ára tímabili. Við hæstv. ráðherra ræddum þessa hækkun undir þessum dagskrárlið um daginn og ég setti hann í samhengi (Forseti hringir.) við þær 115.000 kr. sem hæstv. ráðherra fær í launahækkun í dag eða á morgun á einu bretti. Nú, þegar samningur hjúkrunarfræðinga hefur verið felldur, spyr ég: Kemur það ráðherra á óvart miðað við þennan samanburð? Þarf ekki að gera betur?