150. löggjafarþing — 95. fundur,  30. apr. 2020.

kjaramál lögreglumanna.

[11:02]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég sagði það í fyrra svari við annan hv. þingmann að þessi umræða hér hefði tilhneigingu til að verða mjög yfirborðskennd og slagorðakennd. Hv. þingmaður kom upp í fyrri fyrirspurn og tók upp málstað annars aðilans. Eftir að ég hafði veitt hv. þingmanni andsvar kemur hún hingað upp og segir að auðvitað verði báðir aðilar að fá eitthvað út úr stöðunni. Er það ekki bara kjarni máls? Það þarf niðurstöðu sem báðir aðilar geta sætt sig við. Ríkið hefur gert kjarasamninga við fjöldann allan af opinberum starfsmönnum þar sem gengið er út frá því að aðrir komi ekki hljóðlega og skjóti sér fram fyrir. Þess vegna er samninganefnd ríkisins með skýrar línur um ytri ramma kostnaðar einstakra kjarasamninga. (Gripið fram í.) Samninganefndin hefur gefið öðrum þeim sem hafa þegar samið við ríkið, eins og t.d. sjúkraliðum, loforð. Það eru forsendur fyrir (Forseti hringir.) samningunum að aðrir komi ekki og áskilji sér eitthvað meira. (Forseti hringir.) En hv. þingmanni finnst bara sjálfsagt að hunsa allt slíkt og að samninganefnd ríkisins (Forseti hringir.) eigi bara að hunskast til að líta í hina áttina og semja bara um eitthvað. (Gripið fram í: Hv. þingmanni finnst sjálfsagt að hæstv. fjármálaráðherra ráði við …)(Forseti hringir.)

(Forseti (SJS): Það er búið að svara þessari fyrirspurn.)