150. löggjafarþing — 95. fundur,  30. apr. 2020.

verðbólguhorfur og húsnæðislán.

[11:06]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Það er út af fyrir sig rétt sem hv. þingmaður segir að nýjustu mælingar eru aðeins umfram það sem vænst var en verðbólgan hefur hins vegar ekki farið af stað. Við erum nálægt verðbólgumarkmiði Seðlabankans og þegar rætt er um að hér verði engin verðbólga þá erum við að sjálfsögðu að tala um verðbólgu sem er langt fyrir utan væntingar og markmið Seðlabankans. Það er áhyggjuefni að gengi íslensku krónunnar hefur lítillega gefið eftir. Það getur skapað, ef áfram heldur, verðbólguþrýsting. Það er alveg hárrétt hjá hv. þingmanni og ástæða er til að hafa áhyggjur af því. En lausnirnar við þessu finnst mér vera heldur fátæklegar, þ.e. að kippa einfaldlega öllum tengingum við verðbólguna úr sambandi án þess að það sé rætt hvað það þýðir í stærra samhengi hlutanna, t.d. fyrir framboð af lánsfé til lengri tíma, jafnvel til skamms tíma. Það kom ekki skýrt fram hjá hv. þingmanni hvað það er nákvæmlega sem hann leggur til að verði gert hér. En ég ítreka það sem ég hef sagt áður að við fylgjumst mjög vel með verðbólguþróun. Enn sem komið er hefur markaðurinn ekki sýnt merki þess að hafa trú á verðbólguskoti á næstunni. Það má sjá af ávöxtunarkröfu með t.d. ríkispappíra og verðlagningu verðtryggðra pappíra á markaði, en ef hins vegar sú áhætta, sem vissulega er til staðar þegar gengið gefur eftir, raungerist í verðbólguskoti þá er einn aðili sem á fyrstur allra að bregðast við. Það er Seðlabankinn sem með verðbólgumarkmiði hefur í raun og veru gefið út ákveðið loforð um að tryggja verðgildi peninganna. Um það snýst verðbólgumarkmið Seðlabankans. Það sem hv. þingmaður hefur í hyggju að ríkið eða þingið geri til viðbótar þarf að koma skýrar fram.