störf þingsins.
Herra forseti. Íþróttahreyfingar landsins standa frammi fyrir ærnu verkefni núna við að takast á við skerðingar á tekjum og starfsemi vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar og reyna að gera það án þess að það komi niður á öflugu og samfélagslega mikilvægu starfi þeirra. Því miður liggur nú fyrir að aðgerðir stjórnvalda til að mæta efnahagsáhrifum kórónuveirunnar munu ekki gagnast íþróttahreyfingunum. Almenn skilyrði lokunarstyrkja og stuðningslána eru þannig fram sett að íþróttafélög falla eins og er utan þeirra. Því til viðbótar eru langflestir þjálfarar og starfsmenn lausráðnir og í hlutastarfi sem nær ekki þeim 45% mörkum sem sett eru fyrir nýtingu leiðarinnar. Stór hluti tekna íþróttahreyfingarinnar og einstaka félaga kemur í gegnum mótahald og auglýsingar sem er ekki til að dreifa núna. Þá hefur hreyfingunum líka verið gert ókleift að halda uppi hefðbundnu starfi vegna samkomubanns og viðbúið að stór hluti félagsmanna muni óska eftir endurgreiðslum. Útlitið er því ekkert sérstaklega bjart hvað varðar rekstrarhæfi íþróttafélaga og getu þeirra til að halda áfram þessu mikilvæga verkefni sínu á sama tíma og þörfin hefur líklegast aldrei verið meiri. Það eru fjölmargar íslenskar rannsóknir sem sýna fram á jákvæð áhrif skipulagðs íþróttastarfs á líf barna og ungmenna, sjálfsmynd, vellíðan, líkamlega hreysti og námsárangur. Samdráttur í starfi þessara félaga, sérstaklega skerðing á fjölbreytni starfsins, eykur líkurnar á því að fjöldi ungmenna muni annaðhvort falla út eða sleppa því að hefja þátttöku í slíku íþróttastarfi. Þetta hefur vond áhrif á fólk og fjölskyldur og því er mikilvægt að við finnum leiðir til að styðja við þetta sama fólk, við þessi börn og ungmenni og við þessar fjölskyldur í gegnum íþróttafélögin.
Ég er með í undirbúningi þingsályktunartillögu sem felur í sér að tryggður verði tímabundinn styrkur til barna (Forseti hringir.) til þess að greiða iðkendagjöld hjá skipulögðum íþróttahreyfingum í sumar og næsta vetur. Þetta mun hjálpa til og ég óska eftir stuðningi úr þingsal þegar það mál verður lagt fram.