150. löggjafarþing — 95. fundur,  30. apr. 2020.

störf þingsins.

[11:14]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf):

Herra forseti. Þessi vetur hefur kennt okkur hvað grunnþættir samfélagsins eru mikilvægir. Sterkir innviðir, traustar almannavarnir og öflugt heilbrigðiskerfi, skapandi menntakerfi og auðvitað er margt fleira sem mætti telja. En mig langar þó að draga hér fram tvær starfsstéttir sem sérstaklega hefur mætt á síðustu mánuði, starfsstéttir sem eru samfélagi okkar gríðarlega mikilvægar og við myndum sannarlega ekki vilja vera án en einhverra hluta vegna er þessi ríkisstjórn ekki tilbúin til þess að viðurkenna mikilvægi þeirra við samningaborðið. Ekki nóg með það heldur hafa starfsaðstæður þessara hópa verið gerðar æ erfiðari og hefur verið flótti úr báðum starfsstéttum síðustu ár sem sést vel á fjölda útskrifaðra sem velja að starfa ekki við greinarnar. Hjúkrunarfræðingar sem hafa að undanförnu unnið undir gríðarlegu álagi, hvort sem það er við að sinna Covid-veiku fólki eða á öðrum sviðum þar sem álagið hefur aukist mjög vegna varúðarráðstafana og lögreglumenn sem eru yfirkeyrðir og starfa við aðstæður sem flestum þættu óásættanlegar, oft fáir á vakt að sinna stórum svæðum. Lögreglumenn sem aldrei er samið við, launin aldrei leiðrétt hjá og verða bara að bíða eftir því sem þeim er að lokum rétt. Lögreglumenn sem hafa borið hitann og þungann af þeim almannavarnaaðgerðum sem upp hafa komið í vetur, ekki síst í Covid-19. Má þar til að mynda benda á Víði sem birtist okkur nánast daglega í lögreglubúningnum sem einn af þríeykinu góða.

Herra forseti. Á morgun er 1. maí, baráttudagur launafólksins, og staða ríkisins gagnvart þessum viðsemjendum er skammarleg. Lögreglumenn sem hafa ekki verkfallsrétt eiga betra skilið en þetta. Þetta er ekki ásættanlegt. Við verðum að gera betur til að byggja réttlátt samfélag. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)