störf þingsins.
Frú forseti. Mig langar að ræða örstutt um þær aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur gripið til vegna þess ástands sem við öll erum að kljást við alla daga og taka sérstaklega fyrir tvo þætti hvað þær varðar því að mér hefur þótt gæta töluverðs misskilnings varðandi þá, jafnvel hér í þingsal og líka út í samfélaginu. Það er staðreynd að í þeim lánum og stuðningi sem við erum að veita til fyrirtækja í formi brúarlána og stuðningslána er gerð skýlaus krafa um það af hálfu ríkisins að annars vegar njóti fyrirtæki sem séu í skattaskjólum ekki þess stuðnings og hins vegar að fyrirtækin geti ekki greitt sér út arð á meðan ríkisábyrgðar nýtur við á þeim lánum. Þetta er skýr vilji ríkisstjórnarinnar sem er að finna í þeim málum sem hafa komið fyrir þing. Það er krafist ótakmarkaðrar skattskyldu á Íslandi. Þetta er í samræmi við það sem önnur lönd hafa gert, örfá önnur lönd, Danmörk og Pólland svo dæmi séu tekin. Lönd hafa farið mismunandi leiðir að þessu en markmiðið er það sama. Það er einnig skýr vilji ríkisstjórnarinnar að ríkisstjórnin taki ekki þátt í arðgreiðslu fyrirtækja sem njóta slíkra lána. Þess vegna, á meðan ríkisábyrgðar nýtur við, geta fyrirtæki ekki greitt sér út arð. Þetta ásamt því átaki sem átt hefur sér stað í að draga fram og skrá raunverulega eigendur girðir fyrir það að fyrirtæki geti notið ríkisábyrgðar og greitt sér út arð eða verið í skattaskjóli og notið stuðnings. Þann skýra vilji stjórnvalda er að finna í þeim frumvörpum sem hafa verið lögð fyrir þingið.