150. löggjafarþing — 95. fundur,  30. apr. 2020.

störf þingsins.

[11:18]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg):

Herra forseti. Ekki Covid og ekki efnahagsmál heldur listin. Hún finnur sinn farveg, hvort sem það er fyrir tíma kórónuveirunnar eða á meðan faraldrinum stendur eða eftir að veiran er tamin. Það er ástæða til þess að segja þingheimi frá ánægjulegu framtaki listamanna úr öllum heimshornum sem tóku í vetur þátt í Alþjóðlega listavinnusetrinu SÖGU á Eyrarbakka. Það var haldið í fjórða sinn og nú undir þemanu tímaskyn eða „doing time“ á ensku. Í texta frá forsvarsmönnum segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Samfélagsleg þátttaka og áhersla á nýjar upplifanir eru kjarnagildi í starfi listavinnusetursins og er því lögð áhersla á að listamennirnir fái að skyggnast inn í sögu bæjarins og kynnast samfélaginu út frá ýmsum sjónarhornum.

Samfélagið á Eyrarbakka hefur opnað arma sína fyrir listamönnunum sem fá tækifæri til að vinna með unglingunum í Barnaskólanum, eldri borgurum á dvalarheimilinu og föngum á Litla-Hrauni.“

Í ár opnaði Fangelsismálastofnun dyr Litla-Hrauns fyrir listavinnusetrinu og var haldið fjölþætt kynningarnámskeið í ólíkum listgreinum fyrir um 50 fanga sem sýndu verkefninu mikinn áhuga, kynntu sér t.d. málun og gjörningalist í umsjón þekktra listamanna og unnu verk sem sýnd voru svo í húsakynnum fangelsisins fyrir fanga og starfsmenn. Framhaldið er í undirbúningi. Verkefnið nefnist Múrar brotnir og er á vegum listavinnustofunnar á Litla-Hrauni í samstarfi við Listasafn Árnesinga. Sex vikna vinnustofa fyrir 15 fanga verður undirbúin fyrr eða síðar þar sem þeir fá tæki og tól til að koma hugmyndum sínum í farveg á listrænan hátt sem endar með sýningu á Litla-Hrauni og enn fremur í sýningarsölum listasafnsins í Hveragerði.

Ég tel engan vafa á að listiðkun hefur góð áhrif á margan manninn, líka þá sem hafa verið sviptir frelsi vegna afbrota. Í reynd má fagna framtakinu og óska þess að meira verði gert til að flýta og bæta betrun fanga á marga lund. Fjölga þeim viðburðum sem hjálpa til, allt frá námskeiðum, tónleikum Bubba á Hrauninu og til verkefnis listavinnustofunnar SÖGU eins og ég hef hér farið yfir.