150. löggjafarþing — 95. fundur,  30. apr. 2020.

störf þingsins.

[11:21]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Forseti. Ég heyrði í gær að formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga hefði verið með duldar hótanir um að það þyrfti liðsinni Alþingis ef ekki næðust kjarasamningar við lægst launaða fólkið í sveitarfélögunum í kringum höfuðborgina. Ég skoðaði málið og sá að umboðsmaður barna hafði sent út bréf í umboði barna á Eflingu annars vegar og hins vegar Samband íslenskra sveitarfélaga um að það þyrfti að ná samningum því að verkföll myndu vera á kostnað velferðar barna.

Nú minni ég þessa aðila á að lög Íslands eru skýr. Það eru lög á Íslandi að þegar aðilar taka ákvarðanir um börn skuli velferð barna vera í forgangi, það sem er barni fyrir bestu. Ég horfði á þetta með þeim augum sem mér er gert að gera og hef lofað að gera sem talsmaður barna fyrir þingflokk Pírata og hugsaði: Hvað er best fyrir velferð barnsins í þessu máli? Verkfall er það ekki. Sú barnfjandsamlega tillaga að setja lögbann á verkfall fátækasta fólk landsins og þar af leiðandi fátæk börn landsins er barnfjandsamleg. Hún er ekki í boði. Menn geta reynt að vera með hótanir um að senda svoleiðis hingað inn en ég trúi ekki að ríkisstjórnin myndi setja það á dagskrá. Ef hún gerði það væri minnsta mál að safna liðsinni hér á þingi til að stöðva slíkt. Það er ekki í boði. Það er ekki gott fyrir velferð barna sem okkur er skylt að vernda og sveitarfélögunum er líka skylt að vernda. Hvað er í boði? Við höfum fordæmi úr Reykjavík þar sem velferðarsamningar við Eflingu tryggðu lægst launaða fólki sveitarfélagsins mjög ríflega og ásættanlega launahækkun og (Forseti hringir.) styttu vinnuviku þeirra, sem styrkir að börn geti átt í samskiptum við foreldra sína. Það er eina leiðin í þessu máli sem tryggir velferð barna. (Forseti hringir.) Hv. formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga (Forseti hringir.) ætti að sjá sóma sinn í því að draga þessa duldu hótun til baka og skammast sín.