150. löggjafarþing — 95. fundur,  30. apr. 2020.

störf þingsins.

[11:23]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg):

Herra forseti. Sveitarfélögin eru býsna mikilvægur þáttur í íslensku samfélagi. Þau eru stærsti þjónustuaðilinn í alls konar nærþjónustu og skipta þannig máli vegna þess að þau eru með puttann á púlsinum. Þau vita hvar hjartað slær og hvernig hjartað slær í íslensku samfélagi. Sveitarfélögin gegndu lykilhlutverki í því hvernig við unnum okkur út úr hruninu á sínum tíma og kannski sérstaklega í því að þau gerðu, þrátt fyrir erfiðan efnahag og erfiða stöðu að flestu leyti, gríðarlegt átak í því að tryggja til að mynda sumarstörf ungs fólks og tryggja að atvinnuleysi í þeim hópi yrði sem allra lægst í tengslum við hrunið, þrátt fyrir að mörg þeirra væru líka að taka á sig umtalsvert högg fjárhagslega vegna lóðaskila o.fl. Þetta ber að þakka.

Í núverandi hruni, ef við getum talað um sem svo, í núverandi faraldri, hafa mörg sveitarfélög líka staðið sig afar vel og stór sveitarfélög eins og Reykjavík sett fram áætlanir um það hvernig þau ætli að bregðast við. Það verður meiri og meiri þörf á þessu eftir því sem atvinnuleysi í landinu eykst og ef það verður langvarandi. Þá koma líka upp spurningar um það hvort það þurfi að vera sértæk úrræði fyrir tiltekin sveitarfélög, eins og raunar er að vissu leyti verið að bregðast við í bandorminum sem við erum að fjalla um.

Í gær var kallað eftir samtali á milli sveitarfélaganna og ríkisvaldsins. Ég held að það sé mjög mikilvægt að þessir aðilar tali saman því að þrátt fyrir allt þá megum við ekki líta svo á að við séum í einhverjum liðum, í liði sveitarfélaganna eða liði ríkisvaldsins. Við erum í þessu saman og opinberir aðilar þurfa að tala saman. Það þarf að þróa þetta samfélag þannig að styrkur beggja aðila njóti sín til þess að hjálpa okkur öllum saman í gegnum þennan faraldur.