150. löggjafarþing — 95. fundur,  30. apr. 2020.

störf þingsins.

[11:26]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Nýjasta útspil ríkisstjórnarinnar vegna veirufaraldursins, aðgerðapakki þrjú, var kynntur í vikunni. Ekkert samráð var haft við stjórnarandstöðuna og hún ekki látin vita um málið. Allt ákall stjórnarliða um mikilvægi þess að þingið standi saman að aðgerðum vegna veirufaraldursins er sýndarmennska. Nú hefur það endanlega verið staðfest. Aðgerðapakki þrjú er nokkuð sérstakur. Ferðaþjónustufyrirtækin hafa lýst því yfir að þetta sé umfram væntingar og er það svo sem ágætt, en daginn eftir segja þau upp öllu starfsfólki, mörg þúsund manns. Þetta gengur ekki alveg upp í mínum huga.

Skilaboð ríkisstjórnarinnar eru: Nú getið þið sagt upp starfsfólkinu ykkar án kostnaðar. Í stuttu máli er ríkið að greiða uppsagnarfrest starfsfólksins, en það leysir ekki neinn vanda og eykur í raun bara skuldir ríkissjóðs. Í raun er ríkið að hvetja til uppsagna. Nær væri að framlengja hlutabótaleiðina og draga svo smátt og smátt úr henni eftir því sem ferðamenn fara að koma aftur til landsins. Og hvað með fyrirtækin sem eru að íhuga að fara aðra leið en uppsagnir, fyrirtæki sem ekki eru skuldsett en þurfa aðstoð upp erfiðustu brekkuna? Markmiðið á að vera að koma fjármunum til fólksins. Það er óhjákvæmilegt að einhver fyrirtæki fari í þrot. Skattgreiðendur geta ekki komið öllum til bjargar.

Lággjaldaflugfélög eru þegar búin að tilkynna að þau muni hefja flug t.d. til Tenerife sem sýnir að það verður framboð á flugi. Ríkissjóður þarf að hafa svigrúm til að greiða til einstaklinga sem fara á atvinnuleysisbætur og ekki er hægt að skuldsetja ríkissjóð til að bjarga misgóðum fyrirtækjum, fyrirtækjum sem voru mjög skuldsett fyrir veirufaraldurinn. Við höfum ekkert frétt af bönkunum, hvort þeir séu að standa sig, og það væri fróðlegt að fá upplýsingar um það hvort þeir eru að veita lán og aðra fyrirgreiðslu og hve mörg lán hafi verið veitt (Forseti hringir.) í þeim efnum. Eða er það bara ríkissjóður sem á að sjá um þetta allt saman og þarf síðan að mæta tekjutapinu með skattahækkunum?