störf þingsins.
Virðulegi forseti. Það er margt að gerast á vinnumarkaðnum þessi misserin, fjölmargir að missa vinnuna og aðrir í kjaraviðræðum. Hugur minn er hjá þeim fjölmörgu sem eru að missa vinnuna, bæði í fluggeiranum hjá Icelandair og víðar innan þess geira, í ferðaþjónustunni allri og mörgum öðrum tengdum greinum og afleiddum störfum. En ég hef trú á því að með samtakamætti íslensku þjóðarinnar, bæði hér í gegnum Alþingi, gegnum sveitarstjórnirnar, gegnum fyrirtækin og heimilin, þá munum við komast í gegnum þetta og vonandi mun þessi samtakamáttur koma því til leiðar að sem flestir fái störf sín til baka sem fyrst og áður en reynir á uppsagnirnar eða að hærri liður atvinnuleysisbótanna rennur út. Það er verkefni okkar að stuðla að því.
Það eru líka kjaraviðræður í gangi og þar má kannski sjá helst vaktavinnustéttir sem eru að fara fram á vissar breytingar á vinnutímanum og hvernig vaktavinna sé metin. Um leið er þetta oftast framlínufólkið okkar, en í dag í veirufaraldri er framlínufólk miklu stærri skilgreining og erfitt að tala um einhverja eina stétt þar, það eru miklu fleiri í þeim hópi. Ég ætla að leggja sérstaklega áherslu á þá framlínustétt sem er alltaf að störfum þegar eitthvað kemur upp á, hvort sem það er heilbrigðisvá eða efnahagsvá eða hvað það er, þ.e. lögreglumenn, sú stétt ég þekki hvað best. Þeir þurfa alltaf vera til staðar, þeir eru án verkfallsréttar og þeir fengu inn úrræði í staðinn fyrir verkfallsréttinn sem samninganefnd ríkisins hefur ætíð skautað fram hjá. Þekki ég það alveg frá 2008 þegar ég kom að þeim málum. Því lýsi ég því bara yfir að finna þarf leið til þess að leiðrétta það þar sem þessi leið hefur ekki gengið upp hingað til. Það er ekki hægt að miða við grunnlaunin og meðaltalslaunin. Þegar ég var að störfum í lögreglunni þá fékk ég það sama útborgað eins og grunnlaunin voru, sem sýnir hvað aðrir þættir í launasamsetningunni skipta miklu máli. Ég veit að aðilar eru við samningaborðið nú og vonandi ná þeir (Forseti hringir.) einhverri lausn (Forseti hringir.) sem skiptir miklu máli.
(Forseti (SJS): Forseti svaf mjög á verðinum, hv. þingmaður náði sér í auka 30 sekúndur, en það er algerlega sofandahætti forseta að kenna.)