störf þingsins.
Virðulegur forseti. Covid-faraldurinn á sér margar birtingarmyndir og afleiðingar, ekki bara hina kunnuglegu sjúkdómsmynd heldur aðra sem veldur óhug og má ekki liggja í þagnargildi. Ég er að tala um heimilisofbeldi sem fyrst og fremst beinist gegn konum og börnum. Eftir að kórónuveirufaraldurinn hóf að breiðast út fóru að berast frásagnir af meira og hættulegra ofbeldi gegn konum. Allt frá Brasilíu til Þýskalands, frá Ítalíu til Kína, berast sögur af heimilisofbeldi í félagslegri einangrun, í sóttkví, samkomu- eða útgöngubanni. Tilkynningar um heimilisofbeldi meira en þrefölduðust sem dæmi í Hubei-héraði í Kína á meðan útgöngubann var í gildi. Fjöldi kvenna sem lést vegna heimilisofbeldis á fyrstu þremur vikum eftir að útgöngubann tók gildi í Bretlandi er sá mesti síðustu ellefu árin. Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur hvatt ríkisstjórnir til að leggja ofuráherslu á forvarnir og aðgerðir sem vinna gegn ofbeldi gegn konum í viðbrögðum sínum við Covid-19 og það er sannarlega ekki að ástæðulausu.
Virðulegur forseti. Sérfræðingar okkar hér á landi sem vinna að málefnum þolenda ofbeldis hafa látið þau orð falla að fólk sem beiti ofbeldi eigi mjög auðvelt með að nota ástandið í samfélaginu sem enn eitt vopnið gegn þolendum sínum, ekki síst konum af erlendum uppruna sem viti ekki gjörla hvert þær geta snúið sér. Ríkislögreglustjóri hefur staðfest að tilkynningum um heimilisofbeldi hafi fjölgað að undanförnu svo marktækt sé, hugsanlega um 10%. Þetta eru alvarleg teikn. Við verðum að halda vöku okkar. Þarna gildir samtakamáttur. Við þurfum aðgerðir, útfærðar af okkar besta sérfræði- og meðferðarfólki því meðferðarúrræðin eru sannarlega til. Við þurfum að standa vaktina og bregðast við.
Að lokum: Til hamingju launþegar með morgundaginn, 1. maí, sem hefur nú yfirbragð óvenjulegra tíma.