150. löggjafarþing — 95. fundur,  30. apr. 2020.

störf þingsins.

[11:38]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf):

Herra forseti. Ég legg til að við ákveðum hér og nú að sett verði á fót rannsóknarnefnd sem muni gera upp þær efnahagslegu aðgerðir sem nú er ráðist í vegna hrunsins. Þannig tilkynning á þessum tímapunkti, um að viðbrögð við þessu hruni verði rannsökuð, mun virka sem öflugt aðhald á þær efnahagslegu ákvarðanir sem nú eru teknar. Nú eru kynntir aðgerðapakkar stjórnvalda og ríkisbankar ráðast í alls konar aðgerðir gagnvart fyrirtækjum og fólki. Stórkostleg tilfærsla á fjármunum á sér stað og ákvarðanir um hvaða fyrirtæki lifa og hvaða fyrirtæki munu deyja eru nú teknar.

Nú eru rúm 11 ár síðan bankahrunið var. Í því hruni fór margt úrskeiðis. Tæplega 30 íslenskir bankamenn voru dæmdir í óskilorðsbundið fangelsi. Sumar aðgerðir stjórnvalda og banka urðu mjög umdeildar en þá var ákveðið að setja á fót öfluga rannsóknarnefnd sem hafði nánast ótakmarkaðar heimildir til að gera upp málin og meira að segja var bankaleynd afnumin. Þótt þessi tvö hrun séu eðlisólík og ekkert bendir til brota á lögum í þessu hruni er ljóst að margar ákvarðanir stjórnvalda og annarra aðila verða umdeildar. Sumir munu fá fyrirgreiðslu á kostnað almennings og aðrir ekki, en án gagnsæis verður ekki traust á aðgerðunum. Og þó að orsakir þessa hruns séu auðvitað ljósari en orsakir síðasta hruns stendur eftir að aðgerðirnar sem stjórnvöld og fyrirtæki ráðast í vegna þessa hruns þurfa að koma til skoðunar.

Herra forseti. Nú er því rétti tíminn að ákveða að öllum steinum verði velt í framtíðinni. Þannig tryggjum við best gagnsæi og (Forseti hringir.) aðhald en ekki síst jafnræði í þeim aðgerðum sem nú eru ákveðnar.