um fundarstjórn.
Forseti gerir ráð fyrir því að hv. þingmaður hafi verið að bregðast við því að forseti gerði athugasemdir og hvatti hv. þingmann til að gæta hófs í orðavali. Forseti var ekki að gera athugasemdir við það efni sem hv. þingmaður tók fyrir. Á þessu tvennu er grundvallarmunur.
Forseti vill segja um þetta að öðru leyti að forseta Alþingis er falið samkvæmt stjórnarskrá og þingskapalögum að stýra fundum Alþingis og þar á meðal sjá um að þeir fari fram með góðri reglu. Þegar forsetar þeir sem eru á stóli hverju sinni sjá ástæðu til að gera athugasemdir við orðanotkun, orðfæri eða beina tilmælum til þingmanna um að gæta hófs í orðavali eru þær athugasemdir, þau tilmæli endanleg. Þeim verður ekki áfrýjað og þau eru ekki til umræðu.