150. löggjafarþing — 95. fundur,  30. apr. 2020.

opinber stuðningur til fjárfestinga í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum.

711. mál
[12:14]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ágæta framsögu. Það er fagnaðarefni að þetta frumvarp er komið fram og ég held að verði það að lögum í þeim anda sem það er lagt fram sé það tvímælalaust framfaraskref. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um atriði sem tengjast frumvarpinu a.m.k. með óbeinum hætti. Í fyrsta lagi, þó að það sé ekki annað en nafnið, þá hefur verið talað um svokallaða Stuðnings-Kríu og það vekur að sjálfsögðu hugrenningatengsl við þennan sjóð. Sagt er að ætlunin sé að bjóða tímabundið mótframlag til fjárfestinga í sprotafyrirtækjum, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, undir heitinu Stuðnings-Kría. Spurningin er eiginlega þessi: Er búið að móta það? Hver annast það? Er það Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins eða hvernig verður það? Er búið að ákveða hvaða fjármagn á að leggja í það verkefni? Hvenær verður það formgert? Ég sé ekki í fljótu bragði að það sé fjármagnað í fjáraukalögunum sem við erum að skoða núna. Það væri athyglisvert að fá að vita það.

Svo langar mig til að vita hvernig hæstv. ráðherra sér samspil Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins í sjálfu sér við sjóð af þessu tagi. Eins og fram kom í máli hæstv. ráðherra áðan í svari fjárfestir Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins beint í fyrirtækjum, hefur reyndar fjárfest í vísisjóðum líka. Og kannski síðast en ekki síst: (Forseti hringir.) Hver er fjárhagsstaða Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og fjárfestingargeta hans?