breyting á ýmsum lögum á sviði sjávarútvegs, fiskeldis, lax- og silungsveiði vegna einföldunar regluverks og stjórnsýslu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Já, þetta eru löng frumvörp, dálítið flókið að fá heildaryfirsýn á þetta, en það er ekkert leiðinlegt að vinna þetta. Það er það ekki. Ég er alveg sannfærður um að þegar hv. þingmaður, sem deilir skoðunum með mér í því efni að það er mikilvægt að einfalda regluverkið og hreinsa til í lagasafninu o.s.frv., fer inn í málið og sér hvað er verið að gera þá léttir leiðindunum af honum. Ég er sannfærður um það. Það skal ekki standa á ráðuneytinu að upplýsa og vinna með nefndinni í því vegna þess að þetta er í grunninn bara mjög gott mál og má örugglega gera betur á ýmsum sviðum í þessu. Ég er sannfærður um að það eru meiri líkindi en minni til þess að í yfirferð nefndarinnar komi hún auga á fleiri tækifæri til að taka til í þessu öllu saman. Það er líka held ég mjög mikilvægt í umfjölluninni að nefndin fái upplýsingar um næstu skref sem eru væntanleg í þessu þriggja áfanga verki. Þar er verið að ræða um eftirlitsreglur sem í mörgum tilfellum skarast, ekki bara í þessum málaflokki heldur milli málefnasviða o.s.frv. Ég held að það sé hið besta mál ef við fáum fleiri sjónarhorn inn í vinnslu þeirra mála, fleiri augu til að rýna og höfuð til að hugsa. Þess vegna segi ég það fullum fetum að ráðuneytið þiggur það með þökkum að veita allar upplýsingar um málið og hlakkar til samstarfsins.