150. löggjafarþing — 95. fundur,  30. apr. 2020.

breyting á ýmsum lögum á sviði sjávarútvegs, fiskeldis, lax- og silungsveiði vegna einföldunar regluverks og stjórnsýslu.

713. mál
[16:13]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta er gott dæmi um það hvernig hægt er að koma málum í gegn án þess að ríkisstjórn eða valdastólar skipti þar máli. Þegar allt kemur til alls erum við voðalega sammála um ýmislegt og þarf ekki valdastóla til að koma því í gegn. Þetta mál akkúrat núna er þó vissulega ákveðin beiting þeirra. Í stað þess að leyfa málum einfaldlega að afgreiðast úr nefnd og inn í þingsal eru þingmál hárreytt og verða stjórnarmál. Ég vildi bara vekja athygli á því varðandi valdastóla að við lögðum mjög mikla áherslu á það fyrir síðustu kosningar að við höfðum engan áhuga á samvinnu við Sjálfstæðisflokkinn, en að sjálfsögðu er alltaf málefnalegt samstarf um einstaka mál eins og lagahreinsun. (Forseti hringir.) Það er hægt að afgreiða þau og ná þeim markmiðum án valdastóla.