150. löggjafarþing — 95. fundur,  30. apr. 2020.

aðgerðir í þágu námsmanna vegna COVID-19.

733. mál
[16:44]
Horfa

Flm. (Guðmundur Andri Thorsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Kolbeini Óttarssyni Proppé þetta andsvar. Ég geri ekki athugasemdir við það. Ég geri mér grein fyrir því að ýmislegt hefur verið gert til að mæta þessum vanda námsmanna en við í þingflokki Samfylkingarinnar teljum að betur megi ef duga skuli vegna þess að þessi vandi er mjög aðkallandi. Hann er ærinn og við teljum mjög brýnt að námsmönnum sem standa frammi fyrir, rétt eins og margir aðrir landsmenn, stórkostlegu tekjufalli verði mætt með ýmsu móti en þar sem námsmenn eru annars vegar lenda þeir kannski dálítið á milli skips og bryggju. Við teljum að í þessari þingsályktunartillögu okkar sé að finna leiðir til að koma til móts við þann vanda.