150. löggjafarþing — 96. fundur,  4. maí 2020.

vinna við stjórnarskrárbreytingar.

[15:06]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fyrir að vekja máls á þessu. Fyrst vil ég segja almennt um stjórnarskrárvinnuna sem staðið hefur yfir á þessu kjörtímabili, hefur núna verið í hléi vegna faraldursins, að það var mín ákvörðun að óska eftir þessum fundi núna þegar fyrstu skref hafi verið stigin í afléttingu samkomubanns, reyndar ekki til að ræða það mál sem hv. þingmaður spyr um, heldur til að ræða mál sem við vorum langt komin með og varða forsetaembættið og framkvæmdavald. Enn standa vonir mínar til þess að við getum tekið til umræðu á næsta þingi tillögur til breytinga á stjórnarskrá, bæði hvað varðar auðlindaákvæðið sem hv. þingmaður nefndi, ákvæði um umhverfisvernd og forseta- og framkvæmdarvald. — Ég ætla að benda forseta á að klukkan virkar ekki.

(Forseti (SJS): Forseta er ljóst að það er einhver mánudagur í klukkunni en tímamælingin gengur hjá forseta.)

Hvað varðar jöfnun atkvæða var það ekki á upprunalegri áætlun minni fyrir þetta kjörtímabil þar sem ég skipti vinnunni við heildarendurskoðun stjórnarskrár niður á tvö kjörtímabil. Ég hef hins vegar sagt að sé áhugi fyrir því á vettvangi formanna að breyta þeirri áætlun er ég reiðubúin til þess og m.a. þess vegna var þetta eitt af þeim atriðum sem við settum inn í ekki bara viðhorfskönnunina sem hv. þingmaður nefnir heldur einnig í rökræðukönnunina sem fór fram í framhaldinu. Þar kom nákvæmlega hið sama fram og hv. þingmaður nefnir, það er mikill áhugi á því að jafna vægi atkvæða. Áhrif umræðunnar á rökræðufundinum voru í raun og veru þau að fólk var reiðubúið að horfa á fleiri leiðir en þær að breyta landinu í eitt kjördæmi, þ.e. það var reiðubúið að horfa til þess að breyta hugsanlega kjördæmaskipan til að jafna mætti vægi atkvæða en þessi almenna lína var mjög skýr eins og hv. þingmaður nefnir. Ég hyggst því taka það upp á fundinum á föstudaginn hvort áhugi sé fyrir því á þeim vettvangi að taka þetta mál á dagskrá á þessu kjörtímabili.