biðlistar í valkvæðar aðgerðir.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Eins og kemur fram í máli þingmannsins hefjast valkvæðar aðgerðir frá og með deginum í dag eftir að hafa verið í hléi frá 23. mars. Það hlé var ákveðið í kjölfarið á bréfi sem mér barst frá landlækni um að réttast væri að taka slíka ákvörðun í ljósi þess að við þyrftum á öllu okkar heilbrigðiskerfi að halda fyrir viðbrögð vegna Covid-19. Við erum núna að biðja heilbrigðisstofnanirnar að endurskoða allar sínar áætlanir og sérstaklega í þeim flokkum sem heyra undir biðlistaátakið. Við vitum ekki enn þá hvaða áhrif þetta aðgerðahlé hefur haft á biðtímann en embætti landlæknis hefur verið beðið sérstaklega um að taka stöðuna. Á morgun vænti ég þess — eða a.m.k. örugglega síðar í þessari viku, vonandi gengur það upp á morgun — að geta haldið fund með forstjórum allra heilbrigðisstofnana í landinu sem og forstjóra Sjúkratrygginga Íslands og landlækni þar sem við erum í raun og veru að taka stöðuna í fyrsta skipti eftir að kúfurinn svokallaði er að baki og við höfum breytt samkomutakmörkunum og hafið aftur valkvæðar aðgerðir. Við þurfum m.a. að horfa til þess sem þingmaður nefnir hér, þ.e. vanda sem kann að hafa safnast upp á meðan á þessu óvenjulegu ástandi stóð. Ég vil minna hv. þingmann á það að enn þá er neyðarstig almannavarna í gildi í landinu. Það er líka þannig sem betur fer að það er allnokkuð um að verklag hafi breyst bæði í heilsugæslunni og á heilbrigðisstofnunum og sjúkrahúsum í þær áttir sem við getum tileinkað okkur inn í lengri framtíð. Ég get vonandi komið að því í síðara svari mínu.