biðlistar í valkvæðar aðgerðir.
Virðulegi forseti. Það er a.m.k. ljóst miðað við stöðuna eins og hún er akkúrat í dag, vegna þess að það hefur í raun verið takmarkað hversu mikið af valkvæðum aðgerðum hafa farið fram, að sjúklingar hafa mögulega ekki heldur komið sér á framfæri við umrædda sérfræðinga. Því kann að vera að enn þá þurfi að bíða þangað til að við sjáum í raun og veru hver þörfin er á biðlistum. En það er líka rétt sem kemur fram í máli hv. þingmanns að það fer enginn utan, a.m.k. ekki eins og málin standa núna þessar vikurnar og til þess þarf að taka tillit.
En mig langaði til að nefna það hér varðandi lærdómana, hina jákvæðu, af þessum skipulagsbreytingum sem hafa orðið núna vegna Covid-19, að við sjáum það að heilsugæslan getur annað umtalsvert miklu fleirum í gegnum síma og í gegnum net. Við sjáum líka á hinni öfluga göngudeild Covid-19 á Landspítala verklag sem vonandi verður hægt að færa yfir á fleiri sjúkdómaflokka með það fyrir augum að sinna sjúklingum enn betur.