kostnaður fyrirtækja vegna eftirlits.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir þessa áhugaverðu fyrirspurn, sem ég er ekki viss um að ég skilji alveg, um flækjustig og eftirlitsiðnað. Í hvað er hv. þingmaður að vísa? Er hann að vísa í mál sem snúast um skráningu raunverulegra eigenda, risastórt gagnsæismál sem við höfum afgreitt hér á þingi og höfum verið að vinna síðan með í kjölfarið að auka upplýsingaskyldu stærri fyrirtækja? Ég vísa í mál ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra í því samhengi sem sömuleiðis er ætlað að auka gagnsæi um störf stórra fyrirtækja. Er hann að vísa í það mál sem ég hef lagt fram um vernd uppljóstrara sem snýst svo sannarlega líka um að auka gagnsæi? Er hann að vísa í mál mitt um varnir gegn hagsmunaárekstrum sem snýst einnig um að auka gagnsæi? Er það það sem hv. þingmaður kallar flækjustig og eftirlitsiðnað?
Ég held að meiri hluti þeirra sem reka fyrirtæki á Íslandi sé sammála mér um að það á að vera metnaðarmál íslensks atvinnulífs að hafa eins mikið gagnsæi um sína starfshætti og mögulegt er, að almenningur geti átt greiðan aðgang að upplýsingum um fyrirtæki og til að mynda skráningu raunverulegra eigenda þeirra. Það er risastórt hagsmunamál, ekki bara fyrir okkur sem hér búum heldur líka til að tryggja að við séum samkeppnishæf í samfélagi þjóðanna þegar kemur að vörnum gegn peningaþvætti og öðru. Þannig að mig langar að spyrja hv. þingmann, því ég trúi ekki öðru en að hann sé sammála mér um öll þessi þjóðþrifamál sem ég hef hér talið upp, hvaða mál hann er nákvæmlega að vísa í þegar hann talar um aukið flækjustig og eftirlitsiðnað.