kostnaður fyrirtækja vegna eftirlits.
Virðulegur forseti. Ég þakka forsætisráðherra svarið. Því miður var það dálítið á þeim nótum sem ég reiknaði með og bendir til þess að þetta hafi ekki fengið neina sérstaka athygli í þeirri vinnu sem nú er í gangi. Bara svo dæmi séu tekin þá er hæstv. forsætisráðherra flutningsmaður máls um breytingu á lögum um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda sem setur bændur landsins í aðra og heldur ömurlega hringferð sem snýr að því að verjast ásókn ríkissjóðs hvaða eignarlönd þeirra varðar. Það er eitt dæmi. Í dag verður mælt fyrir loftslagsmáli um skuldbindingar og losunarheimildir og þar er t.d. verið að horfa til þess, ef ég skil frumvarpið rétt, að ráða sex starfsmenn til Umhverfisstofnunar, uppsafnað, til að sinna eftirliti og þar fram eftir götunum. Þannig að þessi atriði blasa við, ég hef bara mínútu til umráða. (Gripið fram í.) Ég ítreka það og hvet forsætisráðherra til þess að uppáleggja ráðherrum sínum það (Forseti hringir.) að taka einn snúning á málaskrá sinni með það í huga að leggja ekki viðbótarálögur á atvinnulífið frá því sem nú er. Nóg er nú samt.