kostnaður fyrirtækja vegna eftirlits.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni aftur en munurinn er sá að ég lít ekki á það sem viðbótarálögur á atvinnulíf að iðka gagnsærri starfshætti. Ég lít ekki á það sem viðbótarálögur á atvinnulíf að taka þátt í því risastóra samfélagslega verkefni sem við öll erum þátttakendur í sem snýst um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Og af því að hv. þingmaður vísaði í það mál sérstaklega þá snýst það einmitt um að einfalda skráningarkerfi og gera það gagnsærra. Hvað þjóðlendumálið varðar sem hv. þingmaðurinn nefnir og ég tel allgóða samstöðu um hér í þinginu, fyrir utan þingflokk Miðflokksins, tel ég ekki að það snúist endilega um hagsmuni atvinnulífsins. Fremur er þar verið að halda áfram þeirri merkilegu vinnu sem hófst á sínum tíma undir forystu þáverandi forsætisráðherra, Davíðs Oddssonar, sem var með þá sýn að mikilvægt væri að eyða þeirri þoku sem ríkti um eignarhald á landi. Í kjölfar þess var þjóðlendufrumvarpið lagt fram, sem er eitt það merkilegasta sem lagt hefur verið fram hér á þingi þegar kemur að því að tryggja rétt almennings. Ég hef ekki trú á öðru en að (Forseti hringir.) það sé yfirgnæfandi meiri hluti hér fyrir að ljúka því verki eins og lagt er til í því frumvarpi, sem bíður raunar bara atkvæðagreiðslu hér á þingi.