umhverfismál.
Virðulegi forseti. Við þurfum einmitt að tala um umhverfismál. Það var eitt í annars prýðilegri ræðu hæstv. forsætisráðherra í gær sem mér fannst ekki alveg sýna rétta hugsun og það var þegar hún fór að tala um veiruna sem óvin sem þyrfti að sigrast á. Ég veit að þetta var líkingamál en ég held samt að ef það er eitthvað sem þetta mál allt hefur kennt okkur þá er það að náttúran er ekki óvinur sem þarf að brjóta undir sig eða sigra heldur umhverfi okkar sem við þurfum að laga okkur að og lifa í og lifa með.
Herra forseti. Sé eitthvað jákvætt sem veiran hefur haft í för með sér þá er það að jörðin hefur fengið örlítið tóm til að anda. Það hefur dregið um stund úr þeirri gegndarlausu rányrkju sem fer fram á takmörkuðum auðlindum jarðarinnar og olíunotkun skreppur saman. Nú er lag. Mig langar að heyra hæstv. umhverfisráðherra ræða aðeins um það við mig hvort ekki sé tóm núna til að endurskoða og endurmeta alls konar ósiði í umgengni við náttúruna. Við upplifum loksins samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda, eiginlega nauðbeygð. Hefur hæstv. umhverfisráðherra hugleitt leiðir til að tryggja að sá árangur, ef nota má það orð, verði viðvarandi? Hyggst hann gera meiri kröfur til sjávarútvegs, til landbúnaðar? Er þess að vænta að meira verði gert til að hraða orkuskiptum í samgöngumálum? Verði nú aftur farið að fljúga villt og galið, hvernig tryggjum við þá áframhald á samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda? Hvernig, virðulegi forseti, ætlum við að hafa þetta? Hér er til mikils vinnandi og það væri fróðlegt að heyra hvort Íslendingar geti notað þetta lag til að koma sér á beinu brautina hvað varðar losun gróðurhúsalofttegunda.