umhverfismál.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni kærlega fyrir góða fyrirspurn. Þetta er einmitt málefni sem ég tel mikilvægt að við getum rætt frekar hér í þingsal. Ég hef sagt það um þá breytingu sem orðið hefur í kjölfar kórónuveirunnar á t.d. losun gróðurhúsalofttegunda að ég vildi að hún væri út af einhverju öðru en kórónuveirunni, að við værum að ná þessum árangri í heiminum með samstilltu átaki til að draga úr losun. Það sem ég held að við getum lært af þessari veiru og því sem hér hefur gerst hvað varðar t.d. samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda er einmitt að samstaðan sem hér hefur verið svo góð og svo mikil í samfélaginu til að takast á við veiruna er akkúrat samstaðan sem við þurfum til að geta tekist á við loftslagsbreytingar. Það eykur mér bjartsýni að sjá hana. Ég held að við munum til einhvers skamms tíma sjá losunina fara aftur upp en verkefni okkar er að til lengri tíma litið séum við að ná losuninni niður líkt og við sjáum gerast núna. Til þess hefur ríkisstjórnin nú þegar gripið til aðgerða til að flýta orkuskiptum, svo dæmi sé nefnt, til að flýta kolefnisbindingu og setja meira fé í nýsköpun sem mun nýtast í því starfi sem þarf að eiga sér stað og í nýjum verkefnum sem geta einmitt orðið til þess að við sjáum breytingar í sjávarútvegi, í landbúnaði og í byggingariðnaði svo að dæmi séu tekin.