150. löggjafarþing — 96. fundur,  4. maí 2020.

umhverfismál.

[15:29]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta svar. Við deilum þessari sýn og vonandi verður þarna einhver árangur. Ég kann að vera glámskyggn en ég hef ekki orðið mikið var við mjög græna áferð á þeim aðgerðapökkum sem ríkisstjórnin hefur lagt fram og ég sé þar ekki mikið um grænar áherslur. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort við megum eiga von á því að sjá kannski frekar slíkar áherslur í komandi pökkum, hvort ekki sé til mikils vinnandi að fara í grænar innviðafjárfestingar sem myndu styðja við orkuskipti á landi og í sjó, rafvæðingu hafna og fjölgun og stækkun á þeim hleðslustöðvum sem eru við hringveginn, svo eitthvað sé nefnt. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra um það hvort við megum eiga von á frekari grænum áherslum í komandi aðgerðapökkum ríkisstjórnarinnar.