umhverfismál.
Hæstv. forseti. Líkt og ég sagði áðan þá höfum við þegar gripið til allmargra aðgerða, t.d. til að flýta orkuskiptum. Þar þurfum við að horfa sérstaklega til ákveðinna þátta. Við þurfum að horfa til þungaflutninga og til bílaleiganna, við verðum að geta skipt hraðar út þeim bílaflota þegar ferðaþjónustan tekur aftur við sér því að hann kemur inn á eftirsölumarkað, 40–50% á síðustu árum. Að þessu erum við að vinna, þessum aðgerðum erum við að flýta þannig að aðgerðapakkinn sem var samþykktur hér í mars var með margar grænar áherslur.
Ég vil líka draga sérstaklega fram að nýsköpun, aukið fjármagn til nýsköpunar, vísar að sjálfsögðu líka til þess að hægt sé að sækja um verkefni sem eru umhverfisvænni en þau sem verið er að vinna með í dag. Þetta tel ég að sé mjög mikilvægt. Auðvitað er veiran að valda okkur mjög miklu tjóni og sérstaklega þeim sem missa líf sitt, þeim sem missa heilsu og það eru málefni (Forseti hringir.) sem við höfum verið að takast á við í gegnum heilbrigðiskerfið. Síðan er það efnahagslegi pakkinn og þar erum við að horfa til grænna lausna líkt og ég kom inn á.