rekstrarleyfi í fiskeldi.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina sem snýr að tímalengd leyfisveitinga. Spurningin er kannski: Hvers vegna hefur málsmeðferðarhraði í sumum tilfellum ekki verið nægilega hraður? Það hefur verið bent á að í sumum tilfellum gætu ferlar verið of flóknir og í öðrum tilfellum taki það hreinlega langan tíma að afgreiða málin hjá stofnunum okkar sem er oft og tíðum vegna þess að þar er mannekla.
Ég ætla að koma aðeins inn á þetta út frá þessum atriðum. Við höfum á grundvelli stjórnarsáttmálans verið að vinna í þessum málum, flýtingu leyfisveitinga, með mismunandi leiðum en samt þannig að þess sé gætt að aðkoma umhverfisverndarsamtaka og almennings sé tryggð, eins og segir í stjórnarsáttmála. Það má kannski nefna í fyrsta lagi að úttekt á löggjöf Norðurlandanna vegna umhverfismats og löggjöf um umhverfismál hefur sýnt að frestir stofnana í nágrannalöndum okkar eru lengri en stofnana hér heima. Það gæti skýrt þetta að hluta til, við séum einfaldlega með of stuttan frest fyrir stofnanirnar til að vinna í þessum oft flóknu málum.
Í öðru lagi má nefna að það eru komnar til heimildir til einföldunar á ákveðnum þáttum sem snúa að löggjöfinni um mat á umhverfisáhrifum sem við samþykktum á þinginu í fyrra sem gefa leyfi til að sameina bæði umhverfismat framkvæmdar og áætlana. Síðan erum við að skoða möguleika á frekari einföldun í leyfisveitingaferli raflína í kjölfar óveðursins í desember og tillögur um það munu brátt liggja fyrir. En ætli ég komi ekki að afgangnum af svarinu hér rétt á eftir.