150. löggjafarþing — 96. fundur,  4. maí 2020.

rekstrarleyfi í fiskeldi.

[15:43]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Það er gott að vita að við hv. þingmaður erum sammála um það að gæta þarf að aðkomu almennings í þessu ferli og ég er algjörlega þeirrar skoðunar að það má einfalda ýmislegt án þess að það þurfi endilega að bitna á aðkomu félagasamtaka eða almennings og ég veit að um það er ágætissamstaða í sjálfu sér. Við þurfum að hraða vinnu við endurskoðun á lögunum um mat á umhverfisáhrifum og sú vinna er í gangi, þannig að ég bind líka miklar vonir við að við getum horft til ýmissa af þessum þáttum þar sem þetta tvennt er samþætt.

Síðan hefur stóraukið fjármagn á þessu kjörtímabili farið til úrskurðarnefndar um umhverfis- og auðlindamál sem hefur gjörbreytt málsmeðferðarhraðanum þar, þannig að hann er að verða kominn á þann stað sem hann á að vera, loksins sem betur fer. Við erum núna að auka fjárframlög til Skipulagsstofnunar vegna þess að þar hefur málsmeðferðarhraði verið allt of hægur. Það er fyrst og fremst vegna manneklu. Þetta eru meðal þeirra atriða sem við erum að vinna að í ráðuneytinu hjá mér.

En það sem hv. þingmaður nefndi sérstaklega varðandi samspil leyfisveitinga hjá stofnunum sem heyra kannski ekki undir sama ráðherrann, þá er það eitthvað sem við höfum að einhverju leyti skoðað en alla vega ekki komist að þeirri niðurstöðu að sameina það hingað til.