150. löggjafarþing — 96. fundur,  4. maí 2020.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

720. mál
[19:06]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er þá spurning hvort ráðherra viti hverju hann eigi að svara ef hann veit ekki hvað hann er spurður um. En af því sem hér er verið að leggja til að sé bannað að markaðssetja er afskaplega lítil sem engin framleiðsla á hér á landi, er ég með upplýsingar um.

Mig langar bara að segja að lokum að í viðleitni okkar til að draga úr plastmengun þurfum við náttúrlega að horfa til margra þátta. Við þurfum að horfa til þess að draga úr framleiðslu einnota vara. Við verðum að draga úr því að nota þær og við þurfum að draga úr því að gera þær aðgengilegar. Við þurfum síðan að koma því plasti sem við notum, hvort sem það er einnota eða fjölnota, í réttan farveg þegar notkuninni lýkur, þ.e. að endurvinna það. Þetta er það sem við í stóru myndinni þurfum að horfa til hér á landi líkt og annars staðar.