150. löggjafarþing — 96. fundur,  4. maí 2020.

svæðisbundin flutningsjöfnun.

734. mál
[19:21]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tek bara undir með hv. þingmanni. Það er mjög mikilvægt að þessi kerfisbreyting, sem er sannarlega til einföldunar og ódýrari í allri umsýslu og svarar betur tímanna kröfum, verði ekki til þess að þjónustan skerðist á þeim stöðum sem við erum að reyna að tryggja með þessu frumvarpi. Þess vegna er þetta einmitt haft með þeim hætti sem lýst er að hægt sé að bregðast við með því að fara í gegnum byggðaáætlun og að reglugerð ráðherra setji í raun og veru þau viðmið, að fengnum tillögum Byggðastofnunar, að reki menn sig á að kerfið virki ekki eins og menn hafi lagt upp með þá sé ekki bundið í lög um að breyta því og bregðast við. Tilgangurinn er að tryggja að þessi þjónusta verði sambærileg og við þekkjum og verði áfram sambærileg um land allt, sérstaklega á þeim stöðum sem ella, ef ekkert kerfi væri til staðar, myndi einmitt verða til þess, eins og kom fram í umsögn eins olíufélagsins, reyndar þess sem er með mest umfang á landsbyggðinni, þ.e. að ef ekkert kerfi væri þá væri þetta hættan. Þess vegna er kerfið ekki lagt af heldur annað kerfi sett í staðinn sem á að tryggja sömu niðurstöðu og í það minnsta jafn góða.