150. löggjafarþing — 96. fundur,  4. maí 2020.

svæðisbundin flutningsjöfnun.

734. mál
[19:40]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M):

Herra forseti. Aðeins nokkrar athugasemdir og punktar sem mig langar að skilja eftir í þessari umræðu. Í fyrsta lagi er mjög mikilvægt að fá það á hreint hvort að þær 175 milljónir, sem hér eru nefndar sem framlag í þessa niðurgreiðslu, séu til samræmis við það sem raunverulega fór í jöfnunina í kerfinu sem á að leggja af. Ég tek fram að sú breyting er ekki endilega slæm, að breyta fyrirkomulaginu á þessu. Það þarf bara að tryggja að markmiðin haldi sér, að ekki verði dregið úr jöfnuðinum. Það verði ekki til þess að loka þurfi á stöðum sem eru háðir því að þessi starfsemi sé til staðar og að verðið rjúki ekki upp úr öllu valdi.

Það eru alveg prýðisgott að Byggðastofnun skuli fá þarna ákveðið hlutverk. Ég tek undir það. Það er mjög mikilvægt að það komi fram því að vitanlega er áhyggjuefni ef það er þannig að miklir fjármunir hafi ekki nýst í raunverulega jöfnun eins og virðist vera þegar við förum í gegnum þessar tölur.

Mig langar líka aðeins að nefna annað af því að hér var nefnt að verið væri að einfalda stjórnsýsluna. Fram kemur á bls. 6 í frumvarpinu, í kaflanum um samráð, með leyfi forseta:

„Fallið hefur verið frá því að mæla fyrir um nákvæmt fyrirkomulag styrkja og í stað þess er það sett í hendur ráðherra að útfæra reiknireglur styrkveitinga samkvæmt frumvarpinu.“

Ég held að mjög mikilvægt sé að þessar reiknireglur liggi fljótt fyrir. Verið er að færa ráðherra á hverjum tíma ákveðið vald til að sýsla með þessar reglur. Það hefði verið betra að þær hefðu verið lögfestar, það lægi fyrir út á hvað þetta gengi. Það kann að vera að hægt sé að gera það þegar búið er að útfæra þessar reiknireglur. Í þeim má ekki vera einhver óvissa. Það má ekki skapast ný óvissa í kringum þetta með einhverjum hætti. Að því sögðu vil ég leggja til að nefndin fari vandlega yfir þetta mál.