150. löggjafarþing — 97. fundur,  5. maí 2020.

störf þingsins.

[13:36]
Horfa

Rósa Björk Brynjólfsdóttir (Vg):

Herra forseti. Það blasa við okkur risavaxnar áskoranir í efnahagslífinu og í hagkerfinu. Tugþúsundir manna eru á atvinnuleysisskrá og spáð er rúmlega 7% samdrætti hagvaxtar hér á landi á þessu ári. Grunnatvinnugrein Íslendinga síðastliðin ár, ferðaþjónustan, er nánast eins og sviðin jörð. En nú er lag að byggja upp ferðaþjónustu á ný sem grundvallast á náttúrunni, umhverfisvernd og sjálfbærni. Í öllum efnahagsaðgerðabjörgunarpökkum ríkisstjórnarinnar er afar mikilvægt að ríkisvaldið stígi inn í uppbygginguna eins og hefur verið gert en aðgerðir verði skilvirkar og opinber stuðningur skilyrtur við siðferðilega viðskiptahætti og sjálfbæran rekstur, félagslega jafnt sem umhverfislega.

Það skiptir miklu máli að við dettum ekki af leið framsýnna umhverfisvænna lausna við þá uppbyggingu sem er í vændum, þannig að við höldum fast í skuldbindingar okkar við Parísarsamkomulagið en frestum þeim ekki, finnum efnahagslegan farveg, hvata og lausnir fyrir sjálfbærri og græna atvinnuuppbyggingu. Stuðningur ríkisins verður að vera markvissari og meira um grænar fjárfestingar, græna og sjálfbæra uppbyggingu ferðaþjónustunnar, umhverfisvænar lausnir í matvælaframleiðslu, tækninýjungar og grænt hugvit í orkugeiranum og græna nýsköpun. Áframhaldandi aðgerðir til að sporna við loftslagsbreytingum verða að vera stærri hluti af efnahagsuppbyggingunni eins og við sjáum í löndunum í kringum okkur þar sem áhersla á grænar lausnir við endurreisn efnahagslífsins er mjög skýr og sterk. Fjölmennur evrópskur hópur þingmanna og ráðherra, forstjórar stórra evrópskra fyrirtækja og leiðtogar verkalýðshreyfinga í Evrópu hafa kallað opinberlega eftir því að einblínt sé á grænar fjárfestingar og líffræðilega fjölbreytni til að hefja aftur efnahagslegan vöxt í álfunni. En ég verð að játa að ég sakna skýrari stefnu ríkisstjórnarinnar um græna efnahagsuppbyggingu sem byggir á sjálfbærri og umhverfisvænni endurreisn og viðsnúning.

Ég spyr: Hvar eru grænu efnahagsaðgerðirnar? Það voru vonbrigði að frumvörpum sem snúast um umhverfismál var frestað fram á haustþing. Umhverfismálum má ekki vera ýtt til hliðar út af Covid-19 eða öðru, heldur þvert á móti, þau eiga að vera í forgrunni akkúrat núna á svona tímum. Ég hvet hæstv. umhverfisráðherra til dáða í þeim efnum og heiti honum stuðningi við þá vinnu. Leggjum línurnar um hvernig samfélag við viljum byggja upp hér. (Forseti hringir.) Það samfélag verður að vera byggt upp með mannúðlegum og grænum lausnum til framtíðar.