150. löggjafarþing — 97. fundur,  5. maí 2020.

störf þingsins.

[13:40]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Herra forseti. Í síðustu ræðu var rætt um að milda höggin á heimilin. Þannig vill til að 20. apríl reiknaði Hagstofan út vísitölu neysluverðs fyrir síðasta mánuð og sú vísitala hækkaði með þeim afleiðingum að verðtryggð lán heimila hafa líklega hækkað um 25 milljarða núna um mánaðamótin vegna þess að ársverðbólgan mælist nálægt 6% samkvæmt því sem kom fram í hækkun milli mánaða hjá Hagstofunni. Inni í þessum vísitöluútreikningi Hagstofunnar núna er reiknað með gæðum og þjónustu sem er ekki til, sem er ekki á markaði, flugfargjöld, pakkaferðir, á þeim tíma hárgreiðsla eins og augsýnilegt er sums staðar. Í staðinn fyrir að sleppa þessum óaðgengilegu vörum og þjónustu er miðað við næsta mánuð á undan. Ég spyr hvort þetta verði raunin fram eftir árinu, að reiknað verði með verði flugfargjalda eins og það var í marslok eða eitthvað slíkt til að halda áfram að pumpa upp vísitöluna.

Hækkunin núna sýnir okkur enn nauðsyn þess að ríkisstjórnin taki nú þegar til við það að frysta þessa sömu vísitölu. Það var ekki gert fyrir tíu árum, líklega stærstu mistök sem voru gerð þá, sem varð til þess að rúmur tugur þúsunda landsmanna lenti á götunni. Við höfum ekki efni á því að endurtaka slíkt, herra forseti, og ég skora á Hagstofuna að (Forseti hringir.) draga til baka þessa útreikninga og þá ákvörðun sem var tekin í síðasta mánuði og reikna þetta upp aftur nú þegar.