150. löggjafarþing — 97. fundur,  5. maí 2020.

störf þingsins.

[13:43]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég hef alla samúð með ferðaþjónustunni, ekki síst ferðaskrifstofum sem glíma núna við lausafjárvanda. Við fengum inn í þingið mál sem tengist því hvernig á að leysa lausafjárvanda ferðaskrifstofa. Leiðin sem ríkisstjórnin hefur hins vegar valið er alveg með eindæmum og það er með ólíkindum að ríkisstjórnin hafi valið þá leið að ganga svo freklega á rétt neytenda. Ég undirstrika að ég skil lausafjárvanda ferðaskrifstofa og hann þarf að leysa en það verður ekki gert með því að ganga á réttindi neytenda. Ég sit í atvinnuveganefnd og um þetta mál var engin umræða í morgun af því að greinilega eru einhver áhöld um hvernig eigi að leysa málið innan stjórnarflokkanna. Það liggur líka ljóst fyrir að þessi leið ríkisstjórnarinnar gengur freklega gegn 72. gr. stjórnarskrárinnar, gegn eignarréttinum.

Ég spyr, virðulegi forseti: Af hverju þetta skyndilega sinnuleysi ríkisstjórnarflokkanna, þar með talið Sjálfstæðisflokksins, gagnvart eignarréttinum? Af hverju er ekki hægt að taka tillit til neytenda? Af því að neytendur eru ekki útgerðarmenn? Af því að Neytendasamtökin eru ekki samtök hagsmunaaðila í útvegi? Leiðin sem ríkisstjórnarflokkarnir hafa ákveðið gengur bæði gegn eignarrétti og hagsmunum neytenda.

Við þurfum engu að síður að taka utan um ferðaskrifstofurnar. Ef málið breytist ekki í meðförum nefndarinnar mun ég þess vegna leggja til tillögu í anda Dana, þ.e. að verja neytendur en halda líka uppi eðlilegu umhverfi, eins eðlilegu og hægt er í því annarlega umhverfi sem við búum við núna. Ég furða mig á leið Sjálfstæðisflokksins sem allt í einu sýnir svo skringilegt sinnuleysi gagnvart eignarréttinum. (Forseti hringir.) Ég spyr: Af hverju?